Stór dagur fyrir ferðaþjónustuna
Kristín Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri með dúxunum við útskrift: Guðmundur Ágúst Aðalsteinsson, Ágústa Gísladóttir, Ólína S. Grímsdóttir Laxdal, Tryggvi Jakobsson, Ingunn Þóra Ríkharðsdóttir og Brynja Dís Björnsdóttir.
Alls voru 129 kandídatar brautskráðir af fimm námsbrautum hjá Endurmenntun Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Háskólabíó í gær. Í fyrsta sinn voru leiðsögumenn brautskráðir af háskólastigi og sagði Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, þetta vera stóran dag fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi.
Katrín óskaði öllum útskriftarnemum og fjölskyldum þeirra til hamingju með árangurinn. Hún sagði jafnframt í ræðu sinni að sem ferðamálaráðherra væri hún mjög stolt. Þetta væri stór dagur fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi þar sem nú væri í fyrsta sinn verið að brautskrá leiðsögumenn á háskólastigi og framtíðin væri vissulega björt í ferðaþjónustunni, að því er segir í tilkynningu frá Endurmenntun Háskólans.
Að ræðum loknum fengu kandídatar afhent skírteini. Námsbrautirnar fimm sem um ræðir eru Gæðastjórnun, Leiðsögunám á háskólastigi, Mannauðsstjórnun, Rekstrar- og viðskiptafræði og Verkefnastjórnun – Leiðtogaþjálfun.
Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur
Veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi árangur og þau hlutu: Ingunn Þóra Ríkharðsdóttir í Mannauðsstjórnun, Tryggvi Jakobsson í Leiðsögunámi á háskólastigi, Guðmundur Ágúst Aðalsteinsson í Rekstrar- og viðskiptafræði. Í Gæðastjórnun voru tveir kandídatar með hæstu einkunn þær Brynja Dís Björnsdóttir og Björk Ólafsdóttir. Í Verkefnastjórnun – Leiðtogaþjálfun voru þrír kandídatar með hæstu einkunn: Jóhanna Helga Viðarsdóttir, Ágústa Gísladóttir og Ólína S. Grímsdóttir Laxdal.
Athugasemdir:
Til hamingju Ísland með fyrstu háskólamenntuðu leiðsögumennina! Þrátt fyrir að leiðsögunám hafi til þessa ekki verið á háskólastigi þá hefur könnun undirritaðs meðal leiðsögunema í Leiðsöguskóla Íslands í Menntaskólanum í Kópavogu leitt í ljós að 3/4 nemenda hafa annaðhvort lokið háskólaprófi eða fagnámi í sinni grein.
Það er því löngu tímabært að upphefja leiðsögunám á háskólastig.
Stefán Helgi Valsson, fagmenntaður leiðsögumaður
Flughræddir ættu ekki horfa
Frí nettenging fyrir þá sem ferðast neðanjarðar
Besta veðrið næstu daga
sunnudagur | mánudagur | þriðjudagur
-
Akureyri
SV2 0°C
-
Höfn
NV4 2°C
-
Egilsst.
VNV6 0°C













Skráðu þig inn