Best að synda á Íslandi
Reykjavík er besta borgin í heiminum til að synda í, samkvæmt ferðatímaritinu Business Traveler. Samkvæmt upplýsingum frá Höfuðborgarstofu hefur febrúar verið annasamur mánuður hjá Upplýsingamiðstöð ferðamanna við Aðalstræti.
Ísland sem áfangastaður ferðamanna hefur verið áberandi í erlendum fjölmiðlum á undanförnum misserum og hafa nokkrir stórir og virtir aðilar í ferðaútgáfu nefnt Ísland sem góðan kost til ferðalaga árið 2010, samkvæmt fréttatilkynningu frá Höfuðborgarstofu.
„Fyrirtækið Lonely Planet sem er leiðandi á sviði útgáfu ferðahandbóka í heiminum, setti nýverið Ísland efst á lista yfir hagstæðustu áfangastaðina árið 2010. Annað leiðandi fyrirtæki í ferðahandbókum, Dorling Kindersley, útgefendur Eyewitness Guides bókanna, nefnir Reykjavík sem tilvalinn stað til að heimsækja á þessu ári meðal annars vegna verðlags og aukins flugframboðs," segir í tilkynningu.
Business Traveler fjallar um 5 borgir í heiminum sem best er að synda í.
Fyrir valinu urðu ein bandarísk borg, ein áströlsk og þrjár evrópskar. Í fimmta sæti var Budapest sem var útnefnd Spaborgin, í fjórða sæti er Sydney sem er valin fyrir Ólympíulaugina var byggð fyrir leikana árið 2000. Í þriðja sæti er Barcelona fyrir strendurnar í borginni og í öðru sæti Las Vegas fyrir fjölskrúðugar hótellaugar.
Í fyrsta sæti er Reykjavík – bæði fyrir sundlaugarnar okkar sem eru út um allt – en líka fyrir nálægðina við Bláa lónið. Sérstaklega er mælt með því að taka sundsprettinn um miðjan vetur í niðamyrkri og vona að heppnin verði með manni og Norðurljósin lýsi upp svartan himininn.
„Vikuna 14. – 20. febrúar komu 3600 gestir í Upplýsingamiðstöð ferðamanna við Aðalstræti. Þetta er um 30% fleiri gestir en í venjulegum febrúarmánuði. Ástæðan fyrir þessari aukningu eru annarsvegar vetrarfrí í Evrópu og hinsvegar Valentínusarferðir -aðallega frá Bretlandi. Ekki var eingöngu um helgarferðir að ræða, heldur var stór hluti þessara ferðamanna að dvelja á landinu í 5 – 7 daga, leigðu bíla og ferðuðust út fyrir borgina," segir ennfremur í tilkynningunni.
Athugasemdir:
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Flughræddir ættu ekki horfa
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
VNV2 5°C
-
Akureyri
V4 7°C
-
Höfn
VSV6 7°C









Skráðu þig inn