Mikil ásókn í styrki

Vatnajökull.

Vatnajökull. mbl.is/RAX

Mikil fjölgun styrkbeiðna barst í ár til Ferðamálastofu vegna úrbóta á ferðamannastöðum. Alls bárust 260 umsóknir, sem er um 18% fjölgun frá 2009 sem þá var metár.

Heildarupphæð sem sótt var um var um 510 milljónir króna en til úthlutunar að þessu sinni voru 48 milljónir króna, eða 9.4%.

Samtals 89 verkefni styrkt

Alls hlutu 89 verkefni styrk. Lægstu styrkirnir nema 70 þúsund krónum en þrjá hæstu styrkina, 3 milljónir hvert verkefni, fengu Sveitarfélagið Skagafjörður vegna snyrtingar fyrir fatlaða við Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ, Ríki Vatnajökuls við Hornafjörð vegna þróunarverkefnis um vistvæna áningarstaði og Borgarbyggð vegna deiliskipulags og tröppugerðar við Grábrók, segir í tilkynningu.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
27. febrúar kl. 11:39

Umhverfissamtökin Blái herinn hafa sótt um stuðning fyrir starfsemi sína en aldrei fengið.Samtökin hafa hreinsað margar af náttúruperlum landsins og hefur 650 tonnum af rusli verið komið í endurvinnslu.Hér er vitlaust gefið eins og svo oft áður því miður

Tómas J. Knútsson

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
10.2. Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
9.2. Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
10.2. Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Betri samgöngur í Bergen

Betri samgöngur í Bergen

Reiknað er með að tvöfalt fleiri flugfarþegar í Bergen nýti sér almenningssamgöngur þegar nýjar lestir byrja að ganga til og frá flugstöðinni Meira
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Kirkjubæjarkl.

    VNV2 5°C

    Alskýjað
  • Akureyri

    V4 7°C

    Lítils háttar rigning
  • Höfn

    VSV6 7°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit