Gistinóttum á hótelum fækkaði í janúar
Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 54.600 en voru 54.700 í sama mánuði árið 2009 samkvæmt tölum sem Hagstofan hefur tekið saman. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi og Norðurlandi þar var fjölgun.
Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 38% milli ára og á Norðurlandi um 25%. Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á Austurlandi eða um 25%. Gistinóttum á Vesturlandi og Vestfjörðum fækkaði um 22% frá fyrra ári og á Suðurnesjum um 8%. Gistinættur á höfuðborgarsvæðinu voru svipaðar milli ára og voru 44.600 samanborið við 45.400 í janúar 2009.
Fækkun gistinátta á hótelum í janúar má rekja til útlendinga. Gistinóttum útlendinga fækkaði um 1%, en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 3% milli ára.
Athugasemdir:
Betri samgöngur í Bergen
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna
Besta veðrið næstu daga
þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur
-
Kirkjubæjarkl.
VNV2 5°C
-
Akureyri
V4 7°C
-
Höfn
VSV6 7°C









Skráðu þig inn