Dvelja lengur á Norðurlandi

stækka

mbl.is/skapti

Erlendir farþegar sem koma til Norðurlands um Akureyrarflugvöll dvelja mun lengur á Norðurlandi heldur en aðrir útlendir gestir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun sem gerð var síðasta sumar af Rannsóknamiðstöð ferðamála.

Voru brottfararfarþegar í flugi Iceland Express frá Akureyraflugvelli markhópur könnunarinnar. Var þetta í fyrsta sinn sem slík rannsókn hefur verið gerð og var hún unnin í náinni samvinnu við Flugstoðir.

Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar í dag á Hótel KEA á Akureyri.
 
Í könnuninni var spurt um ferðavenjur, neyslumynstur og upplifun þeirra erlendu gesta sem fara frá Íslandi um Akureyraflugvöll og ferðamynstur þeirra um Norðurland kortlagt, samkvæmt tilkynningu.

Var könnunin sett upp í sex hlutum. Í fyrsta lagi voru nokkrar almennar spurningar um Íslandsferð svarenda, sem gefa gleggri mynd af ferðamynstri þátttakenda um áfangastaðinn Ísland.

Í þessum hluta var t.a.m. spurt um tilgang ferðar, ferðafélaga, dvalarlengd, hvar viðkomandi komi inn í landið og hvaða landshlutar aðrir en Norðurland voru sóttir heim í ferðinni. Í öðru lagi voru sérstakar spurningar sem er ætlað að gefa vísbendingar um ferðamynstur farþeganna um Norðurland á meðan á Íslandsdvöl stóð. Hér var sérstaklega spurt um hvaða staðir/svæði á Norðurlandi voru heimsótt, fjölda gistinátta, gistimáta, samgöngumáta og  nýtta afþreyingu. Í þriðja lagi var spurt um helstu útgjaldaliði. Í fjórða lagi voru spurningar um gæði og upplifun þátttakenda af Norðurlandi og þjónustu þar. Í fimmta lagi voru spurningar um upplýsingaþörf og -notkun þátttakenda könnunarinnar bæði fyrir ferð og í ferðinni. Í sjötta og síðasta lagi voru spurningar sem snéru að flugvellinum sjálfum.
 
Nærri helmingur ferðamannanna ferðast aðeins um Norðurland og inná Austurland. Einnig er mögulegt útfrá þeim gögnum sem aflað var að áætla tekjur af komum þessara gesta og þannig einnig hvað mörg störf í ferðaþjónustu gætu orðið bein afleiðing millilandaflugsins, að því er segir í fréttatilkynningu. 
 
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
10.2. Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
9.2. Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
10.2. Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira
Flughræddir ættu ekki horfa

Flughræddir ættu ekki horfa

Myndband af flugvélum dansa í vindhviðum við flugvöllinn í Dusseldorf.   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Kirkjubæjarkl.

    VNV2 5°C

    Alskýjað
  • Akureyri

    V4 7°C

    Lítils háttar rigning
  • Höfn

    VSV6 7°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit