Mikil aukning á tjaldstæðum

stækka

Kristinn Ingvarsson

Heildarfjöldi gistinátta var 2,9 milljónir árið 2009, en það er um 6,6% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum fjölgaði milli ára á öllum tegundum gististaða nema hótelum og gistiheimilum, en þar var fjöldi gistinátta svipaður. Gistinóttum fjölgaði um 29% á tjaldsvæðum, 23% á heimagististöðum, 18% á farfuglaheimilum og í orlofshúsabyggðum. Gistinóttum fjölgaði einnig um 15% í skálum í óbyggðum og 13% á svefnpokagististöðum.

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að eftir landsvæðum fjölgaði gistinóttum hlutfallslega mest á Suðurlandi, um 20%, en á Vestfjörðum um 17,6%, á Norðurlandi vestra um 17,3% og á Austurlandi um 7,8%. Gistinætur á Norðurlandi eystra og Suðurnesjum fjölgaði um 7% frá árinu 2008 en fjöldi gistinátta á höfuðborgarsvæðinu og á Vesturlandi var svipaður á milli ára.

Skýrsla Hagstofu Íslands í heild

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
16. mars kl. 19:35

Fjölgar ekki tjaldstæðum,fremur en að þau aukist? Þessi "aukning" er ofnotuð í íslensku máli, t.d. sá ég nýverið frétt um "aukningu fólksfjölda". Fólki fjölgar eða fækkar, hið sama á við um tjaldstæði.

Helgi Skúlason

69 milljónir í ferðatengd verkefni

Umhverfisstofnun fær 5 milljóna styrk vegna hönnunarsamkeppni um Gullfosssvæðið
10.2. Iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna fyrstu úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutað var styrkjum til 30 verkefna að upphæð 69 milljónir króna. Meira »

Flýgur frítt í ár

Hrefna ætlar að bjóða eiginmanninum til Parísar
9.2. Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air. Meira »

3 nýir áfangastaðir Iceland Express

Iceland Express.
10.2. Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta sumar en það eru Prag í Tékklandi, Vilnius í Litháen og Edinborg í Skotlandi. Meira »

Icelandair yfirleitt á áætlun

6.2. Ófærð á Reykjanesbraut seinkaði millilandaflugi undir lok síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það héldu áætlanir á Keflavíkurflugvelli í flestum tilvikum síðustu tvær vikurnar í janúar. Meira »
Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Uppáhalds borgir erlendra ferðamanna

Þó London taki á móti fleiri útlendingum en aðrar evrópskar borgir á hún langt í land með að komast á topp heimslistans yfir þá staði sem fá flestar heimsóknir frá útlöndum   Meira
Flughræddir ættu ekki horfa

Flughræddir ættu ekki horfa

Myndband af flugvélum dansa í vindhviðum við flugvöllinn í Dusseldorf.   Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

þriðjudagur | miðvikudagur | fimmtudagur

  • Kirkjubæjarkl.

    VNV2 5°C

    Alskýjað
  • Akureyri

    V4 7°C

    Lítils háttar rigning
  • Höfn

    VSV6 7°C

    Skýjað

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit