Aukin sala í ferðatryggingum
Sala á ferðatryggingum hefur aukist um rúm 10% í ár og er það meðal annars rakið til eldgossins í Eyjafjallajökli í fyrra.
Í frétt á vef USA Today kemur fram að tryggingafélagið Access America er aukningin mest meðal farþega skemmtiferðaskipa.
Í fyrravor þurfti að aflýsa hundruð flugferða vegna ösku frá eldgosinu í Eyjafjallajökli og var meira og minna allt flug í Norður-Evrópu lamað í marga daga vegna gossins.
Sölustjóri móðurfélags Access America, Mondial Assistance USA segir í samtali við USA Today að kaupendum ferðatrygginga hafi fjölgað jafnt og þétt frá eldgosinu í Eyjafjallajökli. Hann segir að eldgosið hafi haft þau áhrif að ferðalangar vöknuðu upp við vondan draum og nauðsynlegt væri að kaupa slíka tryggingu. En eins skipti máli ástand mála í Miðausturlöndum og flóðbylgjan í Japan.
Athugasemdir:
Himinhátt prentunargjald Ryanair
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Besta veðrið næstu daga
miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur
-
Akureyri
NA3 17°C
-
Egilsst.
ANA4 14°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSA2 12°C














Skráðu þig inn