Hvar eru ferðamennirnir?

Ferðamenn á BSÍ. stækka

Ferðamenn á BSÍ.

Ferðaþjónustuaðilar á landsbyggðinni  og bílaleigur sem Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hefur haft samband við hafa margir hverjir ekki fundið fyrir þeirri miklu fjölgun sem orðið hefur á erlendum ferðamönnum á þessu ári og spyrja sig hvar ferðamennirnir séu.

Hægt er að svara því á þá leið að í fyrsta lagi er mikil fjölgun á erlendum ferðamönnum á höfuðborgarsvæðinu í skemmri ferðum en einnig hefur framboð af þjónustu aukist um allt land, að því er fram kemur í fréttabréfi SAF.

Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað umtalsvert á árinu og standa vonir til að heildarfjölgun á árinu verði um 20% eða 600.000 erlendir ferðamenn í heildina.  Ferðamönnum frá Norður-Ameríku hefur fjölgað langmest eða um 59% en fjölgun er frá öllum markaðssvæðum.  Samkvæmt talningu Ferðamálastofu hefur fjölguninn fram til loka júlí verið 19,6%, en í júlímánuði var fjöldi ferðamanna rétt undir 100.000 sem er met fyrir þann mánuð og búast má við að fjöldinn fari í fyrsta sinn yfir 100.000 nú í ágúst.

„Ljóst er að bæta þarf upplýsingagjöf varðandi fjölda erlendra ferðamanna á landinu og nauðsynlegt að fá betri upplýsingar um dvalartíma og ástæðu dvalar.
Framboð gistirýmis hefur aukist víðast hvar á landinu bæði í þéttbýli og dreifbýli.

Hagstofa Íslands gefur  út gistináttatölur fyrir allar tegundir gististaða aðeins einu sinni á ári en birtir allt árið mánaðarlegar tölur um fjölda gistinátta fyrir heilsárshótel. Samkvæmt þeim tölum hefur gistinóttum á heilsárshótelum fjölgað um 11,4% á fyrstu 6 mánuðum þessa árs en heildaraukningin er mest á höfuðborgarsvæðinu eða 13,6 á meðan gistinóttum á landsbyggðinni fjölgar aðeins um 6%.

Hjá Umferðastofu eru nú skráðir 8.689 bílaleigubílar en voru 7.123 fyrir ári. Aukningin á sér stað bæði á nýjum og notuðum bílum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur skráðum rekstrarleyfum fyrir bílaleigur fjölgað úr 94 í 112 eða um tæp 20," segir í fréttabréfi SAF.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Þráðlaust net í Íslandsflugi

25.5. Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »
Himinhátt prentunargjald Ryanair

Himinhátt prentunargjald Ryanair

Þeir sem mæta í flug hjá Ryanair og gleyma að prenta út brottfararspjöld áður en farið er út á flugvöll þurfa að borga nærri tíu þúsund krónur fyrir prentunina út á velli Meira
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Það verður enginn fulltrúi frá Evrópuþinginu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó í næsta mánuði. Ástæðan er „hóflaus" verðlagning á hótelgistingu í borginni. Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur

  • Akureyri

    NA3 17°C

    Heiðskírt
  • Egilsst.

    ANA4 14°C

    Heiðskírt
  • Kirkjubæjarkl.

    SSA2 12°C

    Heiðskírt

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit