Dregur úr flugi og stundvísi eykst

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar stækka

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar Víkurfréttir/Ellert

Nú þegar háannatíminn í ferðageiranum er að baki hefur flugferðum til og frá landinu fækkað. Hjá Iceland Express voru ferðirnar til að mynda rúmlega helmingi færri á fyrri hluta þessa mánaðar en á sama tíma í júlí. Hjá Icelandair nemur fækkunin um fimmtán prósentum.

Þessi samdráttur í komum og brottförum hjá Iceland Express hefur haft mjög jákvæð áhrif á stundvísina því á fyrri hluta þessa mánaðar voru nærri átta af hverjum tíu ferðum fyrirtækisins á tíma. Þetta eru miklu betri tölur en sést hafa í sumar, segir á vefnum Túrista.

Frammistaða Icelandair er nálægt því að vera sú besta síðan Túristi hóf að reikna út stundvísitölur sínar. Um níu af hverjum tíu vélum fóru á réttum tíma frá Leifsstöð og um áttatíu prósent af komum stóðust áætlun.

Sjá nánar hér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Þráðlaust net í Íslandsflugi

25.5. Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »
Himinhátt prentunargjald Ryanair

Himinhátt prentunargjald Ryanair

Þeir sem mæta í flug hjá Ryanair og gleyma að prenta út brottfararspjöld áður en farið er út á flugvöll þurfa að borga nærri tíu þúsund krónur fyrir prentunina út á velli Meira
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Það verður enginn fulltrúi frá Evrópuþinginu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó í næsta mánuði. Ástæðan er „hóflaus" verðlagning á hótelgistingu í borginni. Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur

  • Akureyri

    NA3 17°C

    Heiðskírt
  • Egilsst.

    ANA4 14°C

    Heiðskírt
  • Kirkjubæjarkl.

    SSA2 12°C

    Heiðskírt

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit