Öryggishliðum fjölgað á Gatwick

Nýjar höfuðstöðvar Iceland Express stækka

Nýjar höfuðstöðvar Iceland Express

Farþegar Iceland Express frá Lundúnum ættu að komast mun hraðar í gegnum öryggiseftirlit á Gatwick flugvelli, eftir að nítján ný öryggishlið voru tekin í notkun á flugvellinum í gær. Endurbæturnar kostuðu 8,1 milljarð króna og eru hluti af 218 milljarða króna heildarkostnaði við endurbætur á flugvellinum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Iceland Express.

„Í tilkynningu frá flugvallaryfirvöldum í Bretlandi segir að breytingarnar þýði að ekki eigi að taka meira en fimm mínútur að koma hverjum farþega í gegnum öryggiseftirlit flugvallarins. Um fimm þúsund farþegar geti farið í gegnum öryggishlið Gatwick á hverri klukkustund, eða 25 prósent fleiri en áður.  Af nítján örygggishliðum eru tvö sérhönnuð til að afgreiða fjölskyldur með ung börn og fatlaða og önnur tvö eru ætluð farþegum sem greitt hafa sérstaklega fyrir meiri þjónustu," segir í tilkynningu Iceland Express.

 Farþegar geta nú sjálfir skannað brottfararspjald sitt við komuna í öryggiseftirlitið, hvort sem brottfararspjaldið er á pappír eða í snjallsíma.

Fjölgun farþega á öllum áfangaleiðum Iceland Express fyrstu níu mánuði ársins er 25,4 prósent og fjölgun farþega í septembermánuði einum er 20,5 prósent. Það stefnir því í að farþegar félagsins fari í fyrsta skipti yfir hálfa milljón á ársgrundvelli og verði tæplega 600.000 á þessu ári, samkvæmt tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Þráðlaust net í Íslandsflugi

25.5. Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »
Himinhátt prentunargjald Ryanair

Himinhátt prentunargjald Ryanair

Þeir sem mæta í flug hjá Ryanair og gleyma að prenta út brottfararspjöld áður en farið er út á flugvöll þurfa að borga nærri tíu þúsund krónur fyrir prentunina út á velli Meira
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Það verður enginn fulltrúi frá Evrópuþinginu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó í næsta mánuði. Ástæðan er „hóflaus" verðlagning á hótelgistingu í borginni. Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur

  • Akureyri

    NA3 17°C

    Heiðskírt
  • Egilsst.

    ANA4 14°C

    Heiðskírt
  • Kirkjubæjarkl.

    SSA2 12°C

    Heiðskírt

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit