Mælir með ferðum til Íslands
Tom Hall, blaðamaður hjá Lonely Planet, vinsælustu ferðabókum heims, mælir með heimsókn til Íslands á árinu sem nú er að hefjast. Hall velur eitt land fyrir hvern mánuð og er Ísland land septembermánaðar.
„Þetta er gott ár til að sækja Ísland heim án þess að hreinsa bankareikninginn. EasyJet mun byrja að fljúga frá Luton til Reykjavíkur í lok mars og verður verðið 59 pund báðar leiðir. Til viðbótar við eldri flugfélög eins og Iceland Express er Wow Air byrjað að auglýsa flug frá íslensku höfuðborginni til Stansted-flugvallar,“ skrifar Hall í lauslegri þýðingu.
Skrif Hall birtast á vef Guardian.
Athugasemdir:
Himinhátt prentunargjald Ryanair
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Besta veðrið næstu daga
miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur
-
Akureyri
NA3 17°C
-
Egilsst.
ANA4 14°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSA2 12°C













Skráðu þig inn