Obama heimsótti Disney-land

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, heimsótti Disney-land í Florída í dag, en heimsóknin er liður í átaki í ferðamálum í Bandaríkjunum. Auðvelda á ferðamönnum að fá vegabréfsáritun til landsins með því að nýta betur rafræna afgreiðslu.

Átakinu er ekki síst beint að ferðamönnum frá Kína og Brasilíu. Obama leitar nú allra leiða til að efla atvinnulíf í Bandaríkjunum og hann telur að ferðaþjónustan eigi að gegna þar mikilvægu hlutverki.

Obama sagði í dag að skilaboð sín til heimsins væru að Bandaríkin byðu alla sem vildu heimsækja landið velkomna. Ef fleiri kæmu og heimsæktu Bandaríkin þyrfti ferðaþjónustan að ráða fleira fólk í vinnu og allir myndu hagnast.

Flórída er eitt af þeim fylkjum Bandaríkjanna sem frambjóðendur í næstu forsetakosningum verða að vinna ætli þeir sér að ná kjöri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
19. janúar kl. 23:50

Disneyland er í Californiu, Disneyworld er í Flórida

Edda Björk Karlsdóttir

Þráðlaust net í Íslandsflugi

25.5. Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »
Himinhátt prentunargjald Ryanair

Himinhátt prentunargjald Ryanair

Þeir sem mæta í flug hjá Ryanair og gleyma að prenta út brottfararspjöld áður en farið er út á flugvöll þurfa að borga nærri tíu þúsund krónur fyrir prentunina út á velli Meira
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Það verður enginn fulltrúi frá Evrópuþinginu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó í næsta mánuði. Ástæðan er „hóflaus" verðlagning á hótelgistingu í borginni. Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur

  • Akureyri

    NA3 17°C

    Heiðskírt
  • Egilsst.

    ANA4 14°C

    Heiðskírt
  • Kirkjubæjarkl.

    SSA2 12°C

    Heiðskírt

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit