Stærsta ferðakaupstefnan
Ferðakaupstefnan Mid-Atlantic 2012, sem hefst í Laugardalshöll á morgun er stærsta ferðakaupstefnan sem haldin er á Íslandi. Hún er nú haldin í 20. sinn, samkvæmt fréttatilkynningu frá Icelandair.
Kaupstefnan er haldin á vegum Icelandair til þess að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja og auka ferðamannastraum til Íslands. Hún er árlegur lykilviðburður í ferðaþjónustunni. Hún stendur nú yfir dagana 2.-5. febrúar og fer fram í Laugardalshöllinni.
„Við fögnum því nú að halda Mid-Atlantic í 20. sinn á 75. afmælisári Icelandair og það er mikið ánægjuefni að kaupstefnan er sú langstærsta frá upphafi og nýir þátttakendur víða að sækjast eftir þátttöku", segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, í fréttatilkynningu.
Fulltrúar á Mid-Atlantic eru nú um 650 alls frá 15 löndum. Að þessu sinni koma um 420 erlendir fulltrúar frá þeim löndum sem hafa mikil ferðaþjónustutengsl við Ísland í Evrópu og Norður-Ameríku.
Athugasemdir:
Himinhátt prentunargjald Ryanair
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Besta veðrið næstu daga
miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur
-
Akureyri
NA3 17°C
-
Egilsst.
ANA4 14°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSA2 12°C













Skráðu þig inn