Flýgur frítt í ár
Hrefna E. Leifsdóttir var dregin úr hópi þúsunda þátttakenda í netklúbbsleik WOW air. Fyrsti vinningur var að ferðast frítt í heilt ár með WOW air.
Hrefna var að vonum glöð yfir vinningnum þegar WOW air-gengið heimsótti hana á Vinnumálastofnun þar sem hún hefur starfað síðastliðin 13 ár, að því er segir í fréttatilkynningu frá WOW.
„Hún sagði vinninginn koma sér afskaplega vel þar sem eiginmaður hennar starfar í Noregi, sonur hennar er búsettur í Þýskalandi og systir hennar á Spáni. Hrefna mun nú geta heimsótt alla fjölskylduna eins oft og hana lystir og þegar spurð um draumaáfangastað stóð ekki á svari. Hún hefur aldrei komið til Parísar og verður það hennar fyrsta verk að bjóða eiginmanninum þangað á ógleymanlegt stefnumót,“ segir í tilkynningu.
Athugasemdir:
Himinhátt prentunargjald Ryanair
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust
Besta veðrið næstu daga
miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur
-
Akureyri
NA3 17°C
-
Egilsst.
ANA4 14°C
-
Kirkjubæjarkl.
SSA2 12°C













Skráðu þig inn