Iceland Travel hlaut viðurkenninu SAF

Verðlaunin afhent. (f.v.) María Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi SAF, Árni Gunnarsson, formaður SAF, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, og ... stækka

Verðlaunin afhent. (f.v.) María Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi SAF, Árni Gunnarsson, formaður SAF, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, og Ragnheiður Valdimarsdóttir, mannauðsstjóri Iceland Travel.

Starfsmenntaviðurkenningu Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) í ár hlýtur ferðaskrifstofan Iceland Travel. Alls bárust níu tilnefningar til verðlaunanna sem nú eru veitt í fimmta sinn. Dómnefnd, sem skipuð er þeim Maríu Guðmundsdóttur, upplýsinga- og fræðslufulltrúa SAF, Ingibjörgu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, og Ólafi Jónssyni, sviðsstjóra Matvæla- og veitingasviðs Iðunnar fræðsluseturs, tók allar tilnefningar til umfjöllunar. Eftir yfirferð sem byggði á greiningu þess sem lagt var til grundvallar matinu og stefnu SAF, varð ein þeirra fremst meðal jafningja.

Til grundvallar ákvörðunar dómnefndar að velja ferðaskrifstofuna Iceland Travel liggja m.a. eftirtalin atriði: 

  • Starfsfólk  skynjar að það sé hluti af innri gildum fyrirtækisins og hefur skilning á mikilvægi þekkingaruppbyggingar og símenntunar
  • Stjórnendur Iceland Travel líta á endurmenntun sem lykilatriði í viðhaldi starfsánægju innan fyrirtækisins
  • Virkri endurmenntunarstefnu hefur verið fylgt og menntunarstig hefur markvisst verið aukið í fyrirtækinu sl. 6. ár
  • Þekkingaröflun og miðlun er heildstæð í fyrirtækinu
  • Frammistöðumat, sem sýnir þjálfunar- og menntunarþörf starfsmanna, er framkvæmt
  • Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám samhliða vinnu. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma meðan á námi stendur, fjárhagslega styrki og umbun fyrir góðan árangur
  • Hugað er að vellíðan og heilsueflingu starfsfólks í samvinnu við fyrirtækið Hrif
  • Fyrirtækið leggur mikið upp úr samfélagslegri ábyrgð og hefur m.a. látið útbúa myndband í því skyni að vekja fólk til umhugsunar um náttúru Íslands og hefur með því skapað sér ákveðið forskot meðal alþjóðlegra samtaka í ferðaþjónustu
  • Fyrirtækið hefur náð ákveðnu samkeppnisforskoti með beinum hætti gegnum markvissa símenntunarstefnu
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Athugasemdir:
Engar athugasemdir hafa verið skráðar.

Þráðlaust net í Íslandsflugi

25.5. Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Miðinn ódýrari með skemmri fyrirvara

18.5. Ef bókað er í dag far til London með Iceland Express eftir fjórar vikur kostar það minna en ef það hefði verið keypt fyrir fyrir tveimur mánuðum. EasyJet er dýrara en öll íslensku félögin í ágúst. Meira »

Búast við auknum ferðamannastraumi

18.5. Búast má við stórauknum ferðamannastraumi milli Íslands og Tékklands á næstu árum í kjölfar þess að Iceland Express hefur opnað nýja flugleið beint á milli Prag og Keflavíkur. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í ræðu í Prag í dag. Meira »

Iceland Express alltaf á réttum tíma

Frá Leifsstöð.
16.5. Ferðum Iceland Express til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar. Stundvísi fyrirtækisins hefur verið góð allar götur síðan að tékkneskt flugfélag hóf að fljúga fyrir það í nóvember. Nærri níu af hverjum tíu ferðum Icelandair voru á réttum tíma á tímabilinu. Meira »
Himinhátt prentunargjald Ryanair

Himinhátt prentunargjald Ryanair

Þeir sem mæta í flug hjá Ryanair og gleyma að prenta út brottfararspjöld áður en farið er út á flugvöll þurfa að borga nærri tíu þúsund krónur fyrir prentunina út á velli Meira
Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Borgirnar þar sem gistingin er dýrust

Það verður enginn fulltrúi frá Evrópuþinginu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Ríó í næsta mánuði. Ástæðan er „hóflaus" verðlagning á hótelgistingu í borginni. Meira

Fleiri fréttir - Túristi.is

Besta veðrið næstu daga

miðvikudagur | fimmtudagur | föstudagur

  • Akureyri

    NA3 17°C

    Heiðskírt
  • Egilsst.

    ANA4 14°C

    Heiðskírt
  • Kirkjubæjarkl.

    SSA2 12°C

    Heiðskírt

Flugupplýsingar

Flug- og hótelleit