Íslensk hönnunarfyrirtæki flýja land
Hugrún Dögg Árnadóttir hönnuður og framkvæmdastjóri KronKron setti svip sinn á Viðskiptaþing 2012. Hún fjallaði um virði hönnunar og þau tækifæri sem Íslendingum stendur til boða á því sviði. Hún talaði um eigin verslunarrekstur en fyrirtæki hennar hefur vaxið hratt síðustu ár.
Hugrún hefur verið í verslunarrekstri síðan 2000 þegar hún keypti Kron skóverslunina af systur sinni, Lindu Björgu Árnadóttur. Átta árum síðar kom fyrsta skólína Hugrúnar á markað.
Í millitíðinni opnaði Hugrún fataverslunina KronKron árið 2004 og var fyrsta fatalínan frá merkinu sett á markað 2011. Nú selja þau föt og skó í yfir 80 verslanir í 35 löndum víðsvegar um heim.
Hugrún ræddi um umfang fatahönnunar. Þrátt fyrir hraðan vöxt hönnunar hérlendis ver hið opinbera eingöngu 37 milljónum króna í styrki til greinarinnar.
Hún sagði að það hefði orðið mikil hönnunarvakning á Íslandi og máli sínu til stuðnings benti hún á að hönnun hefði örugglega ekki verið til umfjöllunar á Viðskiptaþingi fyrir nokkrum árum.
Íslenskt rekstarumhverfi er Hugrúnu hugleikið. Hún segir að íslenskir hönnuðir lendi oft í erfiðleikum vegna tolla á sýnishornum. Hún sagði að það tæki mikinn tíma að fá sýnishorn úr tollinum vegna óvissu um tollaverð á þeim. Auk þess væri útflutningur á íslenskri hönnun erfiður því Ísland væri ekki aðili að svokölluðu EORI-kerfi og enginn kannaðist við EES-samninginn. Því kemst varan varla frá verksmiðjunni á Spáni og ef hún kemst þaðan þá er hún iðulega stoppuð í tollinum í innflutningslandinu. Hægt væri að flytja allt til Íslands og aftur út en það væri of kostnaðarsamt.
Vegna þessa sagði Hugrún að flest hönnunarfélög væru orðin skráð félög í Evrópu. Það væri vilji þeirra til að halda Kron sem íslensku félagi, en eftir fjögurra ára hark sæju þau ekkert annað í stöðunni en að flytja hluta af starfseminni út fyrir landsteinana. Nýlega opnuðu þau dreifingarfyrirtæki í Hollandi og síðan það komst á legg hafa áðurnefnd vandamál verið úr sögunni. Virði hönnunar væri því ekkert ef ekki væri hægt að stunda hönnun hérlendis og halda hönnunarfyrirtækjunum heima.
























