Lærði í sama skóla og Marc Jacobs og Donna Karan

Mynd 1 af 2
Þórný Jónsdóttir deildarstjóri hjá Halldóri Jónssyni. Sigurgeir Sigurðsson

Þórný Jónsdóttir deildarstjóri hjá heildsölunni Halldóri Jónssyni útskrifaðist frá Parsons School of Design árið 1990. Þá hafði hún lokið fjögurra ára námi í markaðs- og sölumálum. Margir þekktir einstaklingar úr tískuheiminum hafa lært í Parsons eins og Donna Karan og Marc Jacobs. Þórný kunnu vel við sig í skólanum.

„Þessi skóli er þekktastur fyrir  kennslu í alls kyns hönnun og listum  ekki síst fatahönnun.  Mitt nám var hefðbundið að mörgu leyti en það fléttaðist líka inn í það allt sem viðkemur listsköpun, listasaga, saga fatahönnunar og margt fleira.  Við vorum líka í verklegu námi í allskyns hönnun,“ segir Þórný. Eftir útskrift starfaði hún í eitt ár í New York og segir hún það hafa verið góða reynslu.

„Fljótlega eftir að ég kom heim sá ég  þetta starf auglýst og leist vel á þar sem um vörustjórnun á heimsþekktum merkjum var að ræða.  Ég þekkti bakgrunn þessara merkja mjög vel úr mínu námi.  Svo heilluðu samskipti við útlönd, ferðalög og margt annað,“ segir Þórný. Halldór Jónsson flytur til dæmis inn snyrtivörur frá Chistian Dior Shiseido. 

Það er líf og fjör í vinnunni hjá Þórnýju og segir hún að engir tveir dagar séu eins.

„Svo er maður innan um  fallegar, góðar og vellyktandi vörur sem skemmir ekki fyrir. Mitt starf byggir mjög á hópvinnu og ég er svo heppin að vinna með fólki sem hefur áhuga á vörunum sem það er að vinna með, er skapandi og skemmtilegt.“

Þú hlýtur að hafa prófað öll heimsins krem og snyrtivörur. Hvað er það allra besta sem þú hefur prófað?

„Það er alltaf erfitt að gera upp á milli en það krem sem hentar mér best er frá Shiseido og heitir Super Corrective Serum. Það er kraftaverka krem eða serum sem ég get ekki verið án.“

Hefur snyrtivörubransinn breyst eitthvað eftir hrun?

„Já, mjög mikið.  Fljótlega eftir hrun fóru konur gjarnan að spara við sig í kremum og leituðu í ódýrari merkin.  En þær eru farnar að skila sér aftur í „ kremin sín“ því hin kremin gerðu bara ekki nóg.  Þó krem geti verið mjög dýr þá ber að athuga að þau endast alltaf miklu lengur því þú þarft minna af þeim.  Virknin í þeim er það mikil. Það þarf hins vegar að hafa meira fyrir hverri sölu í dag þar sem allt er farið kosta svo miklu meira. Enda á það að vera sjálfsagt að veita þannig  þjónustu að viðskiptavinurinn gangi ánægður út og skili sér aftur.“

Þótt það sé mikið að gera í vinnunni sleppir Þórný því aldrei að fara í ræktina. Auk þess hefur hún unum af því að ganga á fjöll.

„Ég fer í ræktina þrisvar í viku til að lyfta. Síðan reyni ég að ganga mikið, geri það sér í lagi á sumrin, ekki síst upp til fjalla. Fyrir hrun fór gönguklúbburinn minn árlega í gönguferðir til útlanda en við höfum látið Ísland duga síðan þá og sjáum ekki eftir þvi. Síðan er ég alltaf á leiðinni í jóga, það kemur að því að ég prófa það.“

Aðspurð um besta leynitrixið þegar kemur að útliti nefnir hún það að lifa í sátt og samlyndi við guð og menn.

„Svo er mikilvægt að sofa nóg og viðhalda ástinni.“

Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?

„Mér líður vel af öllum mat, nema reyktum mat og passa mig að  borða ekki of mikið af honum.“

Ertu hætt að borða eitthvað sem þú borðaðir áður?

„Nei, borða það bara sjaldnar en nýt þess á meðan eins og Búlluborgara.“

Hvað borðar þú þegar þú vilt gera vel við þig ?

„Þá borða ég humar sem kærastinn minn eldar, helst í sveitinni.“

Hvernig málar þú þig dags daglega?

„Ég er meira fyrir létta förðun, þannig að ég er snögg á morgnana; léttur farði, sólarpúður, augnskuggi ,maskari og gloss.“

Hvað finnst þér um fegrunar aðgerðir?

„Mér finnst þær allt í lagi ef þær eru innan marka.“

Hvaða snyrtivöru getur þú ekki verið án?

„Það er nauðsynlegt að eiga gott krem og gloss til skiptanna.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Finnst fegurðarsamkeppnir heimskulegar

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir með sonum sínum.
23.5. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir á eftir að öskra á ítölsku á kjötgerðarmanninn í Róm, dansa með innfæddum í Afríku, baka brauð með konunum í Íran og ræða heimsmálin, synda með höfrungum í Ástralíu ... Meira »

Viltu verða yngri, grennri og ríkari?

11.5. Árelía Eydís Guðmundsdóttir segir að við eigum að horfa á jákvæðu hliðarnar í nýjasta pistli sínum:  Meira »

Elín Hirst veitir fjölmiðlaráðgjöf

Elín Hirst.
20.5. Elín Hirst fjölmiðlakona hefur gengið til samstarfs við Vendum - stjórnendaþjálfun.  Meira »

Segðu það sem þú hugsar

Unnur Valborg Hilmarsdóttir.
2.5. Hversu oft hugsum við fallega til einhvers, dáumst að einhverju í huganum en færum þessar fallegu hugsanir ekki í orð?  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is