Skólar kynna 500 námsleiðir
„Að velja háskólanám snýst ekki aðeins um hvað þú ætlar að gera næstu ár, þessi ákvörðun hefur áhrif á hvaða stefnu þú tekur í lífinu. Möguleikarnir eru margir og fyrir marga er valið ekki auðvelt,“ segir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, forstöðumaður markaðs- og kynningarmála í Háskólanum í Reykjavík.
Háskóladagurinn svokallaði er nk. laugardag milli kl. 12 og 16. Aðsókn hefur að jafnaði verið góð og er búist við um 4.000 gestum. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur dagskrána formlega kl. 12 í HR. Skólarnir sem taka þátt eru Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Há- skólinn í Reykjavík, Háskóli Ís- lands, Listaháskóli Íslands, Hólaskóli – Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands að Hvanneyri, Keilir – auk þess sem tólf danskir og einn sænskur háskóli kynna námsframboð sitt. Alls bjóða þessir skólar um 500 námsleiðir af ýmsum toga.
Dagskráin fer fram á fjórum stöðum; í Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands, Norræna húsinu og Háskólabíói.
Fleira tæknifólk
„Nemendur háskóla, kennarar og námsráðgjafar munu miðla af reynslu sinni með persónulegri ráðgjöf,“ segir Jóhanna Vigdís og bætir því við að í HR finni fólk fyrir því að atvinnulífið kalli eftir fleiri einstaklingum með háskóla- menntun á sviði tölvunarfræði, tæknifræði og verkfræði en að jafnframt sé vaxandi eftirspurn eftir námi í viðskiptafræði og lögfræði, enda séu þetta þær greinar sem liggi til grundvallar atvinnulífinu.
„Við bjóðum einnig sterkar námsbrautir í sálfræði og íþrótta- fræði, en á Háskóladaginn bjóðum við öllum sem vilja að kíkja í heim sókn og kynna sér hvað háskólarnir bjóða, bæði hvað varðar námsframboð og ekki síður þjónustu við nemendur. Í því sambandi má nefna skiptinám en HR er til að mynda með skiptinámssamninga við úrvalsháskóla um allan heim,“ segir Jóhanna.
Lifandi vísindi
Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands munu kynna sig og sitt í húsi HR í Nauthólsvík. Þar verður öflugt vísindastarf og rannsóknir fræðimanna og nemenda við HR kynntar á lifandi hátt um leið og nemendur Listaháskólans bjóða upp á spennandi dagskrá á sviði.
Í Háskólabíói kynna opinberu háskólarnir; Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli og Landbúnaðarháskólinn sameiginlegt námsframboð, en þar verður einnig kynning Listaháskólans, Keilis og norrænu háskólanna. Þá kynnir Háskóli Íslands sig í aðalbyggingu HÍ, á Háskólatorgi, í Háskólabíói og Öskju. Á meðal dagskráratriða í HÍ eru baunatalning, klifurveggur, Vísindasmiðja og sýndarsjúklingur. Háskólinn á Bifröst veitir gestum og gangandi innsýn í lífið þar í Norræna húsinu.
Þekkja möguleika
Jóhanna Vigdís undirstrikar að menntaskólanemum og öðrum sem eru áhugasamir um háskólanám bjóðist að koma í viðtöl til námsráðgjafa og geti til að mynda farið í áhugasviðsgreiningu áður en þeir skrái sig til náms.
„Fólk á að velja nám út frá áhuga og sínum sterku hliðum en til þess að þekkja möguleikana þarf að kynna sér vel það sem er í boði,“ segir Jóhanna Vigdís sem bætir við að það sé hreint ekki verra að foreldrarnir komi með á Háskóladaginn, enda sé nám ungs fólks mál fjölskyldunnar allrar og foreldrar gegni hlutverki námsráðgjafa í lífi barna sinna.
Háskólinn á Akureyri
Heilbrigðisgreinarnar heilla
„Vinsældir heilbrigðisvísindagreina hjá okkur hafa aukist eftir hrun, þ.e. hjúkrunarfræði og iðjuþjálfunarfræði. Sama má segja um félagsvísindi,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri HA. Á Háskóladeginum munu kennarar HA kynna allt námsframboð og nemendur og kennarar verða á staðnum. Þá verða kynnt ýmis verkefni sem unnið er að innan skólans, t.d. vinnsla á eldsneyti úr lífdísel.
Landbúnaðarvísindi í brennidepli
Rauðar rósir og rúllubaggar
„Hornsteinar skólans eru mótaðir af vísindafólki í stöðugri leit að nýjungum,“ segir Áskell Þórisson, kynningarstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands, einnar af þeim stofnunum sem taka þátt í Háskóladegi. Um 500 nemendur eru við skólann í staðbundnu, lotu- eða fjarnámi.
Starf skólans skiptist í þrjú svið, þ.e. auðlinda-, umhverfis- og starfs- og endurmenntunardeild. Gefst þarna kostur á námi t.d. í garðyrkju og hefðbundnum landbúnaði; þ.e. læra má um rauðar rósir og rúllubagga og allt þar á milli.
„Við finnum áhuga á starfsnámi í búfræði og á námskeiðum í skógrækt og reiðmennsku. Í rannsóknum hafa margir kannað nýtingu metans og þar er undir markmiðið að gera íslenskan landbúnað sjálfbæran í orkumálum.“
























