Ræður líffræðilegur fjölbreytileiki neysluhegðun okkar?
Íslenski markaðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur með veglegri ráðstefnu í Hörpu á föstudaginn. Viðfangsefnin koma úr ólíkum áttum en von er á fimm erlendum fyrirlesurum til landsins sem munu flytja áhugaverð erindi um það nýjasta í snjallsímatækni, vefsíðugerð, neytendahegðun, áhrifaríkum auglýsingaherferðum og heitustu stefnur og straumar ársins 2012. Stýra hormónar neytendum verður viðfangsefni Diana Derval en hún er hugsjónakona sem hefur nýtt síðustu ár í að bygga brú á milli vísinda og viðskipta. Mörg fyrirtæki af lista Fortune 500 hafa nýtt sér hugmyndafræði hennar og hefur hún starfað fyrir fyrirtæki eins og Louis Vuitton, TAG Heuer og Moët & Chandon kampavíníð.
Diane er virt vísindakona ásamt því að veraforstjóri og hugvitsmanneskja fyrirtækisins DervalResearch sem hefur þróað öflugt greiningarlíkan, Hormonal Quotient TM, sem hjálpar fyrirtækjum að spá fyrir um hegðun og þarfir neytenda út frá líffræðilegum fjölbreytileika. Við gerð líkansins voru gerðar ítarlegar rannsóknir á 3500 manns í 25 löndum. Í líkaninu sýnir Diane fram á mikilvægi þess að hanna vörur út frá lit, lögun, bragði, lykt, áferð og hljóði með það að markmiði að kalla fram réttar skynblöndur sem eykur jákvæða upplifun neytenda á tiltekinni vöru.
Diane Deval gaf út bókina The Right Sensory Mix á síðastliðnu ári og þótt bókin vera ein áhugaverðasta markaðsbók ársins 2011. Þar veltir Deval upp spurningum út frá líffræðilegu sjónarmiði, eins og af hverju drekka sumir svart kaffi þegar aðrir halda sig við tedrykkju. Á ráðstefnunni mun einnig Henry Mason frá Trendwatching.com fjalla um 12 mikilvæga strauma og stefnur ársins 2012 eins og að taka ábyrgð á eigin heilsu með hjálp nýjustu forritanna fyrir snjallsíma og iPad tölvur. Má t.d. nefna forritið Skin Scan þar sem notendur geta skannað fæðingarbletti og fylgst með breytingum og hvort þörf sé að leita til húðlæknis.
Dagskráin á Íslenska markaðsdeginum er fjölbreytt og ættu þeir, sem hafa áhuga á nýjustu straumum og stefnum, ekki að missa af þessari spennandi dagskrá.
























