Ásta Dís hætt

Ásta Dís Óladóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar er hætt störfum.
Ásta Dís Óladóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar er hætt störfum.

Ásta Dís Óladóttir er hætt sem framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar en undir hennar stjórn var opnuð Victori's Secret-verslun í flugstöðinni og fór að selja Mulberry töskur og stórbætti úrvalið af íslenskri hönnun sem hægt er að fá á mun betra verði en annars staðar.

„Í tölvupósti til starfsmanna er Ástu Dís þakkað fyrir vel unnin störf hjá félaginu og henni óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi. Ásta Dís vildi ekki tjá sig frekar um óvænt starfslok við vf.is. Hún var meðal umsækjenda um starf bæjarstjóra nýlega en dró svo umsókn sína til baka, m.a. vegna hvatningar frá starfsfólki Fríhafnarinnar, að því er kom fram í tilkynningu frá henni.

Ásta Dís mun láta af störfum við lok dags 3. september. Fljótlega eftir helgi  verður tilkynnt hver mun tímabundið gegna stöðu framkvæmdastjóra þar til búið verður að ráða í stöðuna,“ segir á vf.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál