Oprah Winfrey forðast skorthegðun

Oprah Winfrey er afar jákvæð og þakklát.
Oprah Winfrey er afar jákvæð og þakklát. AFP

Oprah Winfrey er ein áhrifamesta kona heims. Það er eflaust margt hægt að læra af henni enda virðist allt sem hún snertir breytast í gull.

Í nýjasta eintaki af O, The Oprah Magazine, lýsir hún því fyrir lesendum hvernig hún byrjar daginn sinn.

„Ég vakna á morgnana og það fyrsta sem ég hugsa er: „Takk,““ útskýrir hin þakkláta Oprah. „Ef þú einblínir á það sem þú átt þá munt þú sjá að þú átt meira til. En ef þú einblínir á það sem þú átt ekki þá munt þú alltaf hafa það á tilfinningunni að eitthvað vanti.“

Oprah hefur oft áður talað um mikilvægi þakklætis og jákvæðni. „Því jákvæðari sem þú ert því meiri jákvæðni laðar þú að þér. Jákvæðara fólk og jákvæðari aðstæður.“

Nýjasta tölublað O magazine.
Nýjasta tölublað O magazine.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál