Kunni ekkert á Excel

Guðmundur Ingi Þorvaldsson.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson.

Guðmundur Ingi Þorvaldsson fékk verðlaun sem MBA-nemi ársins 2014 og tók við verðlaununum AMBA samtakanna í Lundúnum 30. október síðastliðinn. AMBA samtökin standa að verðlaununum á hverju ári en þau hafa það markmið að efla viðskiptamenntun á framhaldsstigi í Evrópu. Guðmundur Ingi útskrifaðist með MBA próf frá HR í vor og tók nýlega við starfi framkvæmdastjóra Tjarnarbíós. Í leikhúsinu við Tjörnina er Guðmundur á heimavelli enda menntaður leikari.

„Ég var í meistaranámi í gjörningalist í London árið 2008. Einn af kennurunum mínum þar var einn af meðlimum leikhúshóps sem kallar sig Shunt. Uppbygging þeirrar starfsemi er alveg ótrúleg og eiginlega fullkomin í mínum huga. Shunt er 10 manna hópur, hver og einn ber ábyrgð á sýningu á tveggja ára fresti eða svo. Þegar þau eru ekki að sýna skiptast þau á að stýra listsýningum í stóru rými undir London Bridge lestarstöðinni. Þau ná að skipta ört um sýningar þannig að það er alltaf eitthvað nýtt og ferskt að sjá. Sýningarrýmið er svo líka bar sem svo breytist í næturklúbb þannig fá þau peninga til að nota í að setja upp listsýningar inn á milli þess að stunda rannsóknir. Þarna er alltaf pakkað, alltaf fullt. Þetta var eins og vera staddur í Lísu í Undralandi. Ég tók þátt í tveimur sýningum með þeim og var í raun eins og heimalningur þarna því mér þótti þetta svo forvitnilegt. Ég fann hreinlega á mér að ég varð að byggja upp svona leikhús á Íslandi,“ segir hann.

Kunni lítið í Excel

Til að láta drauminn verða að veruleika sá Guðmundur fljótt að hann þyrfti að læra á rekstur og stjórnun. Hann hafði tröllatrú á hugmyndinni en vantaði tæki til að útfæra hana. „Það fór svo þannig að ég skráði mig í MBA-námið í HR, sem betur fer. Í dag lít ég hreinlega á það sem guðsgjöf að hafa farið í þetta nám. Allt sem ég lærði í MBA-náminu kemur beint hingað inn í starf mitt í dag, allt sem viðkemur því að reka svona starfsemi. Hér er lýðræði; allt bókhald er galopið og ég legg mikla áherslu á gagnsæi í rekstri og ég hef bara 25% vægi í ákvörðunum sem eru teknar um hvað er sett upp hérna.“

Áður en námið hófst segist Guðmundur varla hafa opnað Excel eða PowerPoint.

„Fyrstu námskeiðin voru í hagfræði og það var mjög erfitt. Á þessum tíma hafði mér boðist að stökkva inn í Vesturportssýngu í London og fékk leyfi frá skólanum til að fara utan. Dagarnir í London voru því þannig að ég lærði til klukkan fimm eða sex á daginn og fór svo og sýndi. Með því að vera svona reglufastur tókst mér að komast í gegnum þetta! Það kom mér líka skemmtilega á óvart að ég hélt ég væri vanviti í stærðfræði en svo sá ég þegar við fórum í gegnum ýmsi raundæmi úr rekstri fyrirtækja að ég sá vandamálið alveg jafn vel og aðrir, sá hvað myndi ganga upp og hvað ekki. Kannski á annan hátt en aðrir, en þá með mínum augum. Það jók sjálfstraustið mikið að finna þetta.“

Stjórnandi á ekki að kunna allt

Guðmundur segist strax hafa orðið var við þá miklu áherslu sem lögð er á samvinnu í MBA-náminu.

„Það er strax í byrjun lögð áhersla á meðvitund um hópinn sem þú ert í og það gengur í gegnum allt námið, enda á stjórnandi á ekki að kunna allt. Í dag er ég með 30 manna her á bak við mig sem ég get alltaf leitað til sem er fólkið sem var með mér í bekk. Í þeim hópi eru verkfræðingar, bankastarfsmenn, fjölmiðlafólk.“

Þetta telur hann vera afar dýrmætt, ekki síst fyrir andlegu hliðina. „Stjórnendur bera ábyrgð og það getur verið erfitt, eins og bara það að reka fólk úr vinnu. Þá verður maður alltaf vera með heildarmyndina á hreinu sem í mínu tilviki eru framtíðarhagsmunir íslenskra sviðslista. Það hefur veitt mér mikinn styrk að hafa skýra sýn á hvað mig langar að gera.“

Trúir á samtalið

Sú áhersla sem lögð er á samvinnu í MBA-náminu á vel við Guðmund.

„Þessi leikhússtarfsemi sem mig langar að efla hér á landi passar ekki alltaf inn í styrkjakerfið því þar þarftu alltaf að segja í umsókn hver afurðin er. En skapar það endilega betri list? Það er spurning. Þetta leikhús gengur út á samstarf og að gera alls konar sviðslist. Því meira sem við vinnum saman, því betri verðum við og þeim mun betri verða sýningarnar okkar og við getum farið að flytja meira út. Góð fordæmi að þessu eru íslenskt tónlistarfólk og dansarar. Þau hafa náð með frábærum hætti að flytja út sína listsköpun.“ Þess vegna vill hann reka fjölleikhús með kaffihúsi til að styðja við reksturinn. Nú þegar hafa verið settar upp nokkrar sýningar í Tjarnarbíói undir merkjum Vinnslunnar, sem er hópur nokkurra íslenskra sviðslistamanna. Sýningin Strengir var frumsýnd þann 23. október. „Við vinnum og spinnum saman. Ég trúi á þetta samtal.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál