Hvernig er hægt að vera of jákvæður?

Árelía Eydís Guðmundsdóttir.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Þú ert alltaf svo ömurlega jákvæð,“ sagði ein við mig um daginn. Ég hef ekki þorað að blogga síðan. Er búin að hugsa lengi um hvað ég eigi að segja sem sé alvarlegt, neikvætt og þrungið þungri merkingu. Dettur ekkert í hug, en í gær þá fór ég að hugsa um vorið,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands í sínum nýjasta pistli.

„Það er náttúrulega ekki nógu alvarlegt og neikvætt að hugsa um vorið, en ég gerði það samt. Ég fór að hugsa hvað það munar miklu um hverja mínútu sem við höfum af birtunni. Það alvarlega í stöðunni er að ég hef alltaf verið haustkerling, ég nýt þess þegar birtu tekur að dvína á haustin og ég get aftur kveikt á kertum. Lyktin af nýjum bókum og haust tískan o.s.frv.

Núna, með hverju árinu, er ég orðin vorveik áður en ég veit af er ég farin að gleðjast yfir hækkandi sól. Hvert merki um vor á Íslandi er ákaflega veik. Þegar ég bjó í Bretlandi byrjuðu trén að blómstra í mars, dásamleg vorsjón. En birtan maður minn birtan er engu lík á Íslandi. Hún smýgur inn í sál og líkama og áður en maður veit er maður allur svo glaður að innan og hugsanir um sumarið, græn tún og sól kræla á sér. Ég held ég sé að eldast, man hvað ömmu og afa þótti vænt um vorið.“

Það er nú samt ekki alveg eins og vorið sé komið og því fékk Árelía Eydís að kynnast í gær.

„Ég var næstum dottin á hausinn í hálkunni í gær, hugsandi um vorið og birtuna og öll svona glöð að innan en ég mun þó reyna mitt ítrasta til að vera svolítið alvarlegri í framtíðinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál