Verkfræðikonur gripu í selfie-stöngina

Hjördís Hugrún, formaður Stuðverks, greip í selfie-stöngina.
Hjördís Hugrún, formaður Stuðverks, greip í selfie-stöngina.

„Selfie-stöngin kom að góðum notum. Þetta er svo hallærislega fyndið að það er eiginlega ekki hægt annað en að vera í góðu stuði þegar svona mynd er tekin,“ segir rit­höf­und­ur­inn Hjör­dís Hug­rún Sig­urðardótt­ir. Hjördís er formaður Stuðverks - skemmti­fé­lags verk­fræðikvenna en Stuðverk heimsótti Opna háskólann í HR nýlega. Rúmlega 50 meðlimir félagsins komu saman og fræddust um þá símenntun og endurmenntun sem stendur til boða fyrir sérfræðinga og stjórnendur í atvinnulífinu.

Hjördís gaf út bókina Tækifærin ásamt móður sinni, Ólöfu Rún Skúla­dótt­ur, í fyrra. Bókin inniheldur viðtöl við ís­lensk­ar kon­ur sem sinna áhuga­verðum störf­um um all­an heim.

„Líkt og hún Áróra Helgadóttir, heilbrigðisverkfræðingur í þróunardeild Össurar, segir í bókinni okkar þá er ákveðni og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu mikilvægur eiginleiki í síbreytilegum heimi. Við Stuðverkskonur vorum því ekki lengi að þiggja það góða boð að mæta í heimsókn í Opna háskólann í HR og hrista aðeins upp í heilasellunum á nýju ári.“

Hjördís greip í selfie-stöngina og tók skemmtilega mynd af hópnum.

Ragnheiður Björnsdóttir, Bjarma Magnúsdóttir, Hjördís Hugrún Sigurðardóttir, Steinunn Þórsdóttir og …
Ragnheiður Björnsdóttir, Bjarma Magnúsdóttir, Hjördís Hugrún Sigurðardóttir, Steinunn Þórsdóttir og Maren Lind Másdóttir eru í stjórn Stuðverks.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál