Byrjar á að flengja og binda kúnnana

Mona Rogers starfar sem dominatrix.
Mona Rogers starfar sem dominatrix. Skjáskot af MarieClaire.com

Kona að nafni Mona Rogers starfar sem drottnari eða „dominatrix“. Starf hennar felst í að taka á móti kúnnum og drottna yfir þeim á einn eða annan hátt. Blaðamaður Marie Claire heimsótti Rogers og spurði hana spjörunum úr.

Rogers kveðst hafa verið 24 ára þegar henni datt í hug að kynna sér BDSM. „Ég hafði alltaf verið sérvitur í kynlífinu,“ útskýrir Rogers sem kveðst hafa tengt samstundis við BDSM. „Ég er með ríkjandi persónuleika og það að kynna mér BDSM hjálpaði mér að skilja sjálfa mig betur.“

Rogers kveðst þó ekki stunda kynlíf með kúnnum sínum. „Nei. Ef ég er að fara að snerta „böggulinn“ þinn þá mun það ekki verða þægilegt. Við [drottnararnir] erum ekki hérna til að veita unað, þeir [kúnnarnir] eru hérna til að veita okkur unað. Ég veit að einhverjar dominatrix bjóða upp á kynlíf en ekki ég.“

Rogers segir alla kúnnana vera ólíka en yfirleitt byrjar hún á að flengja og binda kúnnana sína. Þá bindur hún jafnvel fyrir augun á þeim en hún segir það gera hlutina áhugaverðari. Þar sem starf Rogers felst í því að meiða kúnna sína er nauðsynlegt að hún sé með svokallað „safe-word“ eða öryggisorð. „Venjulegt öryggisorð er „miskunn“ en mitt persónulega öryggisorð er „ís“, það öskra allir fyrir ís,“ útskýrir Rogers sem sinnir hverjum og einum kúnna í um eina til þrjár klukkustundir að meðaltali. „Þetta fer allt eftir því hvað þeir vilja.“

Foreldrarnir eru sáttir

Rogers segir foreldra sína vita við hvað hún starfar. „Ég sagði þeim frá þessu þegar þetta varð meira en áhugamál hjá mér. Það var fyndið hvernig pabbi tók þessu. Einn daginn þegar við vorum að horfa á sjónvarpið þá sagði ég: „Ég ætlaði að vera búin að segja þér frá þessu en ég starfa sem dominatrix.“ Og hann sagði: „Ó, allt í lagi.“ Og svo hélt hann áfram að horfa á sjónvarpið,“ segir Rogers. „Mamma mín var meira hikandi, hún hafði áhyggjur af öryggi mínu og svoleiðis.“

Rogers kveðst vera stolt af starfi sínu. „Ég geri það sem ég vil gera. Það er mjög frelsandi að geta stýrt sínum eigin vinnutíma, það eru ekki margir sem geta gert það. Ég hef kynnst sjálfri mér í gegnum BDSM og þetta hefur verið mjög jákvæð reynsla,“ útskýrir Rogers að lokum.

Viðtalið við Rogers má lesa í heild sinni á heimasíðu Marie Claire.

Mona Rogers notar ýmis tæki og tól í vinnunni.
Mona Rogers notar ýmis tæki og tól í vinnunni. Skjáskot af MarieClaire.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál