Birtir bólumyndbönd sem slegið hafa í gegn

Húðlæknirinn Sandra Lee er snillingur í að kreista bólur og …
Húðlæknirinn Sandra Lee er snillingur í að kreista bólur og fílapensla. racked.com/Youtube

Húðlæknirinn Sandra Lee varð YouTube-stjarna á svipstundu eftir að hún fór að birta ógeðsleg myndbönd sem sýna hana kreista bólur og fílapensla. Lee er með rúmlega 61.000 áskrifendur á YouTube sem vilja ólmir fylgjast með Lee að störfum.

Lee starfar í Kaliforníu og er afar vinsæll húðlæknir. Myndböndin hennar, sem eru jafn viðbjóðsleg og þau eru vinsæl, sýna hvernig Lee kreistir bólur og fílapensla eins og henni einni er lagið. „Mér finnst þetta svolítið heillandi,“ sagði Lee í viðtali við Racked. „Ég kreisti þetta og já, það veitir mér smá vellíðan, en það er ekki eins og ég sækist í þetta.“

Líkir bólumyndböndum við klám

Lee trúir varla hversu vinsæl myndbönd hennar eru. „Ég áttaði mig ekki á hversu vinsælt þetta yrði.“ Hún segir myndböndin sín vera af tvennum toga. „Hörð sprengja og mjúk sprengja. Sumir vilja bara sjá fílapensla, það er eins og ljósblá klámmynd. Aðrir vilja sjá bólur,“ úrskýrir Lee sem líkir bólumyndböndum við argasta klám.

„Fólk heldur kannski að ég sé háð þessu en ég er það ekki. Þetta er ekki það eina sem ég geri. Ég hef líka birt myndbönd sem sýna aðrar aðgerðir sem ég hef framkvæmt en fólk hefur ekki eins mikinn áhuga á þeim.“

Meðfylgjandi myndband er ekki fyrir viðkvæma.

Skjáskot af YouTube-rás Söndru Lee. Rúmlega 61.000 notendur fylgjast með …
Skjáskot af YouTube-rás Söndru Lee. Rúmlega 61.000 notendur fylgjast með henni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál