Þetta eru nýjustu Victoria's Secret englarnir

Lais Ribeiro og Martha Hunt er nýjir englar Victoria's Secret.
Lais Ribeiro og Martha Hunt er nýjir englar Victoria's Secret. Skjáskot af dailymail.co.uk

Það þykir mikill heiður í fyrirsætuheiminum að fá að ganga tískupallinn hjá Victoria‘s Secret (VS) með vængi á bakinu. Körfuboltakona, besta vinkona Taylor Swift og markaðsfræðingur eru meðal þeirra kvenna sem hlutu nýverið þann heiður.

VS teymið er að stækka því tíu nýjar fyrirsætur hafa nú fengið VS-englavængina sína. Þetta eru þær:

Elsa Hosk er 26 ára og er frá Svíþjóð. Hosk spilaði körfubolta af kappi en ákvað nýverið að gefa boltaíþróttina upp á bátinn og einbeita sér að fyrirsætuferlinum.

Jac Jagaciak er 21 árs frá Póllandi. Jagaciak var uppgötvuð árið 2007 í verslunarmiðstöð. Þegar hún var 15 ára gömul tók hún þátt í tískuvikunni í New York og vakti mikla athygli. Þá fór ferill hennar á flug fyrir alvöru.

Jasmine Tookes er 24 ára. Hún hefur stundað fimleika af kappi síðan hún var barn. Tookes hefur setið fyrir í ótal auglýsingum, meðal annars fyrir merkin Ugg og Gap.

Kate Grigorieva er 25 ára gömul og er frá Rússlandi. Grigorieva sótti um að taka þátt í Ungfrú Rússland árið 2010 en stóðst ekki þær kröfur sem keppnishaldarar settu. Árið 2012 komst hún svo inn í keppnina og lenti í tíunda sæti. Grigorieva stundaði listnám og er með BA-gráðu í markaðsfræði.

Kate Grigorieva kemur frá Rússlandi.
Kate Grigorieva kemur frá Rússlandi.

Lais Ribeiro er 24 ára og er frá Brasilíu. Hún byrjaði að starfa sem fyrirsæta árið 2009. Ribeiro hefur starfað fyrir merki á borð við Chanel, Chanel, Louis Vuitton og Dolce & Gabbana. Ribeiro stundar hnefaleika og fótbolta.

Martha Hunt er 26 ára er býr að mikilli reynslu en hún hefur gengið tískupallinn á tískuvikum rúmlega 180 sinnum. Hunt er besta vinkona söngkonunnar Taylor Swift. Hunt hefur áhuga á matargerð, brimbrettum og dansi.

Romee Strijd er frá Hollandi, hún er ekki nema 19 ára gömul. Strijd hefur brennandi áhuga á innanhúshönnun og eldamennsku. Strijd er reynslubolti og hefur unnið með hönnuðum á borð við Alexander McQueen, Calvin Klein, Isabel Marant og Michael Kors.

Sara Sampaio er frá Portúgal. Hún er 23 ára og er fyrsta portúgalska fyrirsætan til að birtast á blaðsíðum Sports Sports Illustrated Swimsuit Issue. Sampaio er með brúna beltið í karate og spilar á fiðlu.

Stella Maxwell er 24 ára og fædd í Írlandi en uppalin í Belgíu. Maxwell hefur einnig búið í Nýja Sjálandi. Maxwell var uppgötvuð þegar hún stundaði nám í háskólanum í Otago. Maxwell elskar badminton og klettaklifur.

Taylor Hill er 19 ára gömul, hún var uppgötvuð að ljósmyndaranum Jim Jordan. Hill hefur starfað fyrir meðal annars verslunarkeðjuna H&M og Intimissimi. Hill er tónlistarunnandi að eigin sögn og hefur gaman af því að fara á snjóbretti.

Meðfylgjandi myndband birtist á Mail Online.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál