„Að klæðast svörtu bjargaði starfsferli mínum“

Natasha Koifman klæðist alltaf öllu svörtu.
Natasha Koifman klæðist alltaf öllu svörtu. Skjáskot af vef Marie Claire

Natasha Koifman, eigandi almannatengslafyrirtækisins NKPR Inc, lýsir því í pistli á vefsíðunni Marie Claire hvernig það að klæðast svörtu á hverjum degi í vinnunni hafi breytt starfsferli sínum. Hún segir fólk of upptekið af því að svartur sé leiðinlegur litur og að maður eigi að forðast það að klæðast öllu svörtu. Á hverjum morgni barðist hún við að finna einhvern fallegan lit til að klæðast þó svo að hún vissi að sér liði ávallt best í svörtu.

„Þegar ég byrjaði með NKPR Inc leið mér eins og ég þyrfti alltaf að vera klædd í einhver lit til þess að líta út eins og vinnandi kona, það var það sem tískubransinn vildi. Sjálfri leið mér þó alltaf best í öllu svörtu því þá hafði ég völd.“

„Eftir að ég kynntist svo sjálfri mér betur fór mér að verða sama um skoðanir annarra og hverju tískuheimurinn sagði mér að ég ætti að klæðast. Ég fór að taka sjálfri mér alvarlega og þá fóru aðrir að gera slíkt hið sama. Eitt sinn keypti ég mér brúna peysu því að hún var svo vinnuleg en endaði á því að nota hana aldrei, því ég hataði litinn.“

Tilbúin á 25 mínútum 

„Nú er fataskápurinn minn afar skipulagður. Ég á stuttermaboli, hlýraboli, buxur, jakka og kjóla allt í svörtu. Þar sem ég þarf ekki að huga að litasamsetningum get ég verið tilbúin að yfirgefa húsið á 25 mínútum.“

„Í vinnunni kynnist ég fullt af nýju fólki á hverjum degi sem líður oft eins og það þekki mig því að það veit hvernig ég er. Það veit hverju það á von á og það gefur fólki tækifæri á að treysta mér, þau vita að ég er samkvæmt sjálfri mér.“

Koifman segist þó ekki einungis klæðast svörtu heldur sé einkenni svartur einnig líf sitt. „Viðskiptaspjaldið mitt er svart, bíllinn minn er svartur og hundarnir mínir eru svartir.“

„Margir segja svartan ekki vera lit en fyrir mér er hann einmitt besti liturinn. Hann veitir mér styrk og fyllir mig af sjálfsöryggi. Hann gerir mig að því sem ég er.“

Natasha Koifman eigandi almannatengslafyrirtækisins NKPR Inc.
Natasha Koifman eigandi almannatengslafyrirtækisins NKPR Inc. Skjáskot af vef Marie Claire
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál