Fékk bara 169 „læk“ á fyrstu myndina

Myndin til vinstri er gömul og fékk frekar lítil viðbrögð. …
Myndin til vinstri er gömul og fékk frekar lítil viðbrögð. Myndin til hægri er nýleg og fékk rúm 17.000 „læk“. Af Instagram-síðu Chloe Morello

YouTube-stjarnan Chloe Morello fékk bara 169 „læk“ á fyrstu ljósmyndina sem hún birti á Instagram. Það hljómar kannski ekki illa en það er klárlega lítið miðað við þau viðbrögð sem Instagram-myndirnar hennar vekja í dag. 1,3 milljónir manna fylgja Chole á Instagram og hennar nýjustu myndir fá gjarnan um 15.000 „læk“.

Þetta kemur fram í samantekt Mail Online yfir nokkrar vinsælustu Instagram-stjörnurnar.

Þær Nicole Warne, Jessica Stein og Sara Donaldson eru meðal þeirra vinsælustu á Instagram og geta grætt himinháar upphæðir fyrir myndbirtingar á samfélagsmiðlinum. En áður en þær náðu vinsældum birtu þær myndir sem fengu nánast enga athygli.

Mikil myndvinnsla, gæðamyndavél og rétta viðfangsefnið virðist vera galdurinn á bakvið velgengnina.

Nicole Warne er afar vinsæl á Instagram, þessi mynd fékk …
Nicole Warne er afar vinsæl á Instagram, þessi mynd fékk til að mynda um 19.600 „læk“ en þegar hún byrjaði fyrst á Instagram vöktu myndirnar hennar litla athygli. Af Instagram-síðu Nicole Warne.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál