Sú elsta sem birtist í Sports Illustrated

Myndirnar úr Sports Illustrated af Nicola Griffin hafa nú þegar …
Myndirnar úr Sports Illustrated af Nicola Griffin hafa nú þegar vakið athygli en tímaritið er ekki komið út. Swimsuits for all

Nicola Griffin er 56 ára og prýðir blaðsíður næsta tölublaðs tímaritsins Sports Illustrated Swimsuit Issue. Griffin er elsta fyrirsætan sem hefur birst í tímaritinu en hún segir þá staðreynd láta sér líða eins og hún sé 80 ára.

Tölublaðið sem Griffin er í kemur út seinna í þessum mánuði en myndirnar af bikíniklæddri Griffin hafa nú þegar vakið mikla athygli.

„Þetta snýst ekki allt um að vera 20 ára og 180 sentímetrar á hæð. Við erum komin með leið á því,“ sagði Griffin í viðtali við vef Daily Mail. „Stundum þegar fólk segir að ég sé elsta konan sem birtist í Sports Illustrated Swimsuit Issue líður mér eins og ég sé 80 ára.“

Nicola Griffin er 56 ára.
Nicola Griffin er 56 ára. Swimsuits for all
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál