Hvað er að gerast með Depp?

Johnny Depp var eitt sinn heitasti gæinn í Hollywood. Hann …
Johnny Depp var eitt sinn heitasti gæinn í Hollywood. Hann er nú aftur kominn á markaðinn. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Johnny Depp, sem eitt sinn var heitasti gæinn í Hollywood, virðist vera að detta aftur á markaðinn en eiginkona hans til 15 mánaða hefur sótt um skilnað.

Depp gekk að eiga leikkonuna Amber Heard í febrúar 2015, en athöfnin fór fram á Bahamas-eyjum, Skötuhjúin höfðu þá átt í sambandi um nokkurt skeið en þau kynntust við tökur á kvikmyndinni The Rum Diary árið 2011.

Mörgum þykir vera farið að halla undan fæti hjá Depp, en á sínum yngri árum gerði leikarinn kvenpeninginn snælduvitlausan. Enda var hann orðaður við hverja fegurðardísina á fætur annarri.

Depp hefur þrisvar verið kvæntur, auk þess sem hann hefur trúlofað sig nokkrum sinnum. Hann átti til að mynda í sambandi við leikkonuna Winonu Ryder og fyrirsætuna Kate Moss. Þá var hann einnig kvæntur söngkonunni Vanessu Paradis í 14 ár, en saman eiga þau tvö börn.

Depp þótti ómótstæðilegur á sínum yngri árum.
Depp þótti ómótstæðilegur á sínum yngri árum. Ljósmynd / Skjáskot Daily Mail
Johnny Depp og Winona Ryder áttu í ástarsambandi á tíunda …
Johnny Depp og Winona Ryder áttu í ástarsambandi á tíunda áratugnum. Ljósmynd / Skjáskot Daily Mail
Kate Moss og Johnny Depp voru gullfallegt par á sínum …
Kate Moss og Johnny Depp voru gullfallegt par á sínum tíma. Ljósmynd / Skjáskot Daily Mail
Depp var kvæntur söngkonunni Vanessu Paradis í 14 ár.
Depp var kvæntur söngkonunni Vanessu Paradis í 14 ár. Ljósmynd / Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál