Þríþrautardrottningin og fyrirsætan Jenny Fletcher er stödd á Íslandi þessa stundina en er að fara að keppa í þríþrautarkeppninni Challenge Iceland um helgina. Fletcher er ein af 20 atvinnumönnum sem koma til landsins fyrir helgina til að keppa í Challenge Iceland.
Fletcher greindi frá því á Snapchat að hún væri himinlifandi með að keppnin færi fram hér á landi. „Þetta var á „bucket“-listanum mínum. Ég er svo spennt að vera hérna.“ Þess má geta að Challenge Iceland er hluti af Challenge Family-mótaseríunni þar sem keppnir eru haldnar um allan heim í flestum heimsálfum.
Fletcher, sem er styrkt af Oakley, er í toppformi en um seinustu helgi keppti hún í Challenge Roth í Þýskalandi og lenti í tíunda sæti.