Hún er dóttir frægs tónlistarmanns

Um 80.000 manns fylgjast með Anaïs Gallagher á Instagram.
Um 80.000 manns fylgjast með Anaïs Gallagher á Instagram. Skjáskot af Instagram

Hún er fædd árið 2000 og er dóttir frægs tónlistarmanns frá Manchester. Hún heitir Anaïs og er orðin sannkölluð tískufyrirmynd og fyrirsæta þrátt fyrir ungan aldur. Um 80.000 manns fylgjast með henni í gegnum Instagram, en hver er pabbi hennar?

Faðir hennar er enginn annar en Noel Gallagher úr hljómsveitinni Oasis.

Anaïs hóf fyrirsætustörf aðeins 11 ára að aldri. „En ég byrjaði að einbeita mér að módelstörfum fyrir alvöru á seinasta ári,“ sagði Anaïs í viðtali fyrir Vogue þegar dætur frægra rokkara voru teknar fyrir. Hún kveðst einnig hafa mikinn áhuga á leiklist. „Ég hef áhuga á að komast í slík verkefni, en ég er bara ánægð og spennt að sjá hvað gerist í framtíðinni.“

@lanvinofficial I always feel super lucky when my baby Oscar is allowed on set ✌🏼️

A photo posted by Anaïs Gallagher (@gallagher_anais) on Mar 7, 2016 at 9:15am PST

Anaïs Gallagher ásamt pabba sínum, Noel.
Anaïs Gallagher ásamt pabba sínum, Noel. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál