Búin að breyta nafninu sínu á Facebook

Sara breytti eftirnafninu sínu á Facebook úr Piana yfir í …
Sara breytti eftirnafninu sínu á Facebook úr Piana yfir í Heimis. Skjáskot af Facebook

Líkamsræktardrottningin Sara Heimisdóttir hefur verið mikið á milli tannanna hjá fólki eftir að hennar fyrrverandi, Rich Piana, sendi frá sér myndband og sagði frá því að hún hefði bara gifst sér fyrir peninga og græna kortið.

Í myndbandinu sagði Rich að hann væri sár en hann tók einnig fram að hann óskaði henni alls hins besta, sagði hana ráða því hvort hún myndi kalla sig Piana áfram. Sara hefur kallað sig Söru Piana síðan þau gengu í hjónaband seint á seinasta ári en eftir að myndband Rich fór í dreifingu í fyrradag hefur Sara ákveðið að breyta Facebook-nafni sínu til baka í Sara Heimis.

Þess má geta að bæði Sara og Rich virðast vera búin að finna ástina aftur en Sara er skráð í samband með vöðvatröllinu Chris Miller og Rich er byrjaðir aftur með sinni fyrrverandi.

Sara og Rich Piana á brúðkaupsdaginn.
Sara og Rich Piana á brúðkaupsdaginn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál