Ertu klár fyrir nýtt ár?

Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi.
Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

„Um áramót er tilvalið að líta yfir farinn veg. Rifja upp góðar minningar. Halda upp á það sem fór vel og draga lærdóm af því sem betur mátti fara,“ segir Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi í sínum nýjasta pistli: 

Aldrei það kemur til baka

Sum ár eru þannig að við kveðjum þau með feiginleik. Þá hefur svo margt gengið á að við fögnum nýju ári sem birtingarmynd nýrra tíma.

Önnur ár kveðjum við með söknuði þess sem misst hefur ástvin. Þá lítum við til baka og minnumst þeirra daga sem við nutum.

En önnur ár upplifum við jafnvel að lífið hafi gengið sinn vanagang. Tíðindalítið. Eða eins og Valdimar Briem orti: „Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá, það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.“

Gerum upp árið 2016

Hvað svo sem árið bar í skauti sér í þínu lífi, þá er kominn tími til að gera það upp. Það er nefnilega gott að staldra við áður en þú leggur drög að því sem koma skal á nýju ári.

Ég setti saman nokkrar spurningar til að hjálpa þér. Ég legg til að þú finnir blað og takir fram skriffæri. Það gefur góða raun að gera ársuppgjörið í höndunum.

1. Farðu yfir með hvaða hætti þú hefur fjárfest tíma þínum, orku og peningum á árinu. Stundum reynist raunveruleikinn frábrugðinn því sem við ætluðum okkur.

Hvað tók mest pláss í dagatalinu?

Í hverju fjárfestirðu í ár?

2. Berðu kennsl á og haltu upp á það sem þú hefur afrekað. Jafnvel þó þér virðist það smávægilegt. Okkur hættir til að líta framhjá framförum okkar.

Hverjir voru þínir stærstu sigrar á þessu ári?

Hvað geturðu þakkað fyrir?

Í hverju tókstu áhættu?

Hvaða verkefni hafa mesta þýðingu?

Hvaða verkefnum laukstu ekki á þessu ári?

Hvað er það sem þú gleðst yfir að hafa áorkað?

3. Komdu auga á það sem þú getur lært af reynslunni og hvernig þú getur nýtt þér þann lærdóm á komandi ári. Reynslan er besti kennarinn ef við nýtum hana okkur til góðs.

Hvaða orð eða setning lýsir best reynslu þinni á þessu ári?

Hvað lærðirðu í tengslum við fyrirtækið þitt eða frama þinn á þessu ári?

Markmið fyrir 2017

Nú þegar þú hefur gert upp það sem er liðið, er kominn tími til að leggja drög að því sem þú ætlar þér á nýju ári.

Eins og flestir vita er munur á markmiðum og áramótaheitum. Munurinn er sá að markmiðum þarf að fylgja tímasett framkvæmdaáætlun. Áramótaheitum er hins vegar oft fleygt fram án þess að þeim fylgi sú alvara sem þurfa þykir til að þeim verði framfylgt. Rannsóknir hafa sýnt að örfáir standa við áramótaheit en hins vegar eru 95% líkur á að þú náir markmiðum þínum ef þú setur þau fram á þann hátt sem ég ætla að deila hér á eftir.

Markmiðasetning sem virkar

Napoleon Hill, sagði að markmið væru draumar með tímafresti. En það er einmitt tímafresturinn sem greinir á milli drauma og markmiða.

Vissir þú að aðeins um 5% fólks skrifar niður markmiðin sín og gerir áætlun um að fylgja eftir draumum sínum? Hver sem ástæða þess kann að vera, er þér ekkert til fyrirstöðu. Það er nefnilega gott að vera í þeim minnihlutahópi sem skrifar niður markmiðin sín og hrindir þeim í framkvæmd.

Svona seturðu þér markmið skref fyrir skref: 

  1. Skilgreindu markmiðið? Hafðu nákvæmnina að leiðarljósi.
  2. Hvað er það fyrsta sem þú þarft að gera?
  3. Brjóttu markmiðið niður skref fyrir skref. Það reynist auðveldara að fylgja því eftir þannig.
  4. Gerðu markmiðið þitt mælanlegt (hversu mikið, hversu margir osfrv.)
  5. Hvernig muntu geta náð markmiðinu þínu?
  6. Þarftu utanaðkomandi stuðning til að ná markmiðinu þínu?
  7. Hvenær verður markmiðið orðið að veruleika? (dagsetning og ártal) 

Eitt ráð að lokum. Þegar markmiðasetning er annars vegar er gott að hafa í huga að ferðalagið er jafn mikilvægt og áfangastaðurinn. Mundu eftir að fagna áfangasigrunum og njóta hvers einasta dags.

Gangi þér vel og gleðilegt nýtt ár!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál