Teiknaðu upp hið fullkomna ár

Guðrún Bergmann.
Guðrún Bergmann. mbl.is/Árni Sæberg

„Það eru liðnar um tvær vikur frá áramótum, en ég leyfi þó þessum hugleiðingum sem eru afar tengdar þeim tímamótum að birtast hér. Ég heyri svo oft í starfi mínu sem ráðgjafi þessi orð: „Ef ég hefði bara byrjað fyrr.“ Víst er að margt gæti verið öðruvísi ef maður hefði byrjað fyrr á einhverju, en það er nú einu sinni þannig að þangað til við skiljum hversu mikilvægur þáttur eigin ákvarðanir eru í mótun lífs okkar, erum við oft treg til að setja okkur markmið.

Markmið okkar eru mikilvæg leið til að móta líf okkar. Við ráðum sjaldnast öllu um útkomuna, en við ráðum miklu, bara með ákvörðunum okkar. Þú getur ef þú vilt nýtt þér tækifæri NÚNA til að „teikna“ og þar með ákveða, hvernig þú vilt að hið fullkomna ár þitt líti út. Markmiðin kveikja alltaf í manni innri elda og hvetja mann til dáða,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli á Smartlandi: 

Hér fylgja því nokkur ráð fyrir þá sem virkilega vilja búa sér til mynd af komandi ári.

1. HVAÐ GEKK VEL?

Skrifaðu niður á blað, með penna eða blýanti, 20+ hluti sem gengu vel á síðasta ári. Skoðaðu hvað þú lærðir af því sem vel gekk og hvaða þekkingu þú öðlaðist, sem þú getur nýtt þér á komandi ári til að ná enn meiri árangri.

2. TEIKNAÐU UPP FULLKOMIÐ ÁR

Skrifaðu niður á blað, teiknaðu myndir eða klipptu út myndir til að líma á stórt blað allar þær hugmyndir sem þú hefur um fullkomið ár hjá þér. Hafðu markmiðin stærri en þú heldur að þú náir, til að þú teygir þið aðeins lengra en þú heldur að sé mögulegt.

3. SETTU ÞÉR 5 MÁNAÐARLEG FORGANGSVERKEFNI

Skrifaðu niður fimm verkefni sem þú ætlar að leysa í hverjum mánuði, hvort þau sem snúa að starfi þínu eða persónulegu lífi. Um leið og þú ert búin að skrifa þau niður byrjarðu ósjálfrátt að sá fyrir þér hvernig hægt að að leysa þau.

4. LOSAÐU ÞIG VIÐ ÚRTÖLUFÓLK

Þetta er svolítið töff tillaga, en ef það er einhver eða einhverjir í kringum þig sem sífellt eru með úrtölur, þegar þú færð frábærar hugmyndir eða vilt gera eitthvað sem ögrar þér, þarftu annaðhvort að biðja viðkomandi að hætta úrtölunum eða finna þér aðra til að umgangast. Annars er hætta á að hugmyndir þínar verði úrtölunum að bráð.

5. BÚÐU ÞÉR TIL DAGLEGAR STAÐFESTINGAR

Útbúðu stutta setningu eða 2-3 jákvæðar staðfestingar sem þú segir upphátt á hverjum morgni. „Ég er ákveðin/-n í að ná x miklum árangri í sundi...“ eða hverju sem þú vilt ná árangri í. Búðu til staðfestingar sem samræmast þeim fimm forgangsverkefnum sem þú setur þér mánaðarlega. Lestu staðfestingarnar daglega.

Eftir ár héðan í frá myndir þú óska þess að hafa byrjað NÚNA! Þess vegna er svo mikilvægt að hefjast handa strax, til að þú verðir allt það besta sem þú getur orðið. Heimurinn þarfnast þess að þú látir ljós þitt skína og í lok þessa árs muntu geta litið um öxl og þakkað fyrir allt sem þú afrekaðir – en bara ef þú hefst handa NÚNA!

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál