Velgengni er ákveðin vísindi

Árelía Eydís Guðmundsdóttir.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Markmiðasetning eru mínar ær og kýr, ef svo má að orði komast. Ég hef gefið út bækur um efnið, kennt um það í fjöldamörg ár. Ekkert merkilegt við það í sjálfu sér en það sem mér finnst alltaf jafnskemmtilegt er að fylgjast með rytmanum í markmiðasetningum,“ skrifar Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Háskóla Íslands í sínum nýjasta pistli: 

Við byrjum árið á markmiðum í matarræði og hreyfingu og förum svo í maraþonmarkmið og á haustin byrjar meistaramánuður. 

Eftir umtalsverða umhugsun og yfirlegu þá finnst mér að rytminn ætti líka að snúast um eitthvað meira. Við höfum öll getuna í okkur til að breyta lífi okkar reglulega í þágu einhvers stærra en eingöngu líkamlegrar hreysti, þó svo að það sé mikilvægt líka. 

Velgengni er ákveðin vísindi sem byrjar innan frá. Hvernig gengur þér að hvetja sjálfan þig? Hvernig gengur þér að stjórna, því einu sem þú getur stjórnað, sjálfum þér? Hvernig tekst þú á við erfiðleika og kemur niður á fótunum? Hvernig ætlar þú að bæta við þig þekkingu? 

Mikilvægasta markmiðasetning snýr að því að finna tilgang sinn. Þekkja sitt eigið hjarta og vita að hverju maður stefnir með þessu lífi. Setja sér markmið um að öðlast visku til að líf manns geti þjónað öðrum en eingöngu sjálfum sér. Markmið um hvernig maður ætlar að vaxa og þroskast sem manneskja. Fá meira út úr lífinu, kreista hvern dropa út úr því sem maður getur orðið. Setja sér markmið um að upplifa tilfinningar sínar og læra að hugsa um þarfir sínar, um raunverulega nánd og kærleika og hvernig maður getur náð að njóta sín í lífi og starfi. 

Hitt sér kannski betur um sjálft sig þegar við fylgjum okkar eigin áttavita – sem er ekki auðvelt og krefst mikillar vinnu. Sú vinna skilar sér í sálarsátt. 

Velgengni er vísindi en eins og önnur vísindi er hægt að læra með gagnrýnum huga.  

Gleðilegt stærra ár! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál