Hneyksluð á nýjasta Hús og híbýli

Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Háskóla Íslands. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Þegar ég fer í klippingu eða snyrtimeðferðir (ekki alveg ókeypis að líta svona út ;-) eins og vinkona mín ein segir alltaf) nota ég tækifærið og les öll „kerlingatímaritin“. Eða réttara sagt kíki á þau. Þessi íslensku tímarit sem ætluð eru konum eru mismunandi að gæðum en eftir því sem ég verð eldri og vitrari þá eru þau fá sem vekja áhuga minn. Í nýjasta Hús og híbýli-blaði vakti ein grein athygli mína því þar var talað um að húsfreyjan tók á móti blaðamanni og svo var sýnt úr „húsbóndaherbergi“,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir í sínum nýjasta pistli:  

Árelía Eydís var ekki ánægð með húsbóndaherbergið í Hús og …
Árelía Eydís var ekki ánægð með húsbóndaherbergið í Hús og híbýli.



Ég svitnaði af hneykslun og leit upp úr blaðinu og stórskammaðist í meðferðaraðila mínum, „húsbóndi“, „húsbóndaherbergi“. Ég hef ekkert á móti karlmönnum, elska þá og alls ekki á móti því að þeir eigi sitt eigið herbergi. En... húsbóndi, í alvöru? Hefði verið hægt að segja hann eða hún – eða eiginkona, eiginmaður eða bara frúin og herrann. Eða hvað sem er en ... húsbóndi! Í alvöru?

Er einhver kona sem enn þá segir að eiginmaður hennar sé húsbóndinn? Í hinum blöðunum voru endalaus viðtöl við fólk (lesist konur) um hvað þær borða og hvert þær fara í ræktina. Í alvöru! Fyrirsæturnar eru hálfnakin börn sem auglýsa krem og annað dót. Í einu blaðanna var sýnt í afmæli eins árs barns sem hefur örugglega tekið þrjár vikur að undirbúa. Hvernig á að þrífa og hvað á að borða – í alvöru!

Mig langar að lesa um pólitík. Um konur sem sigrast á hindrunum. Um viðskipta-trend. Um frumkvöðla, um bónda uppi í sveit. Um níutíu ára konu sem litar á sér hárið í hverri viku og dansar zumba. Um konu á miðjum aldri sem vill bjarga heiminum. Um tuttugu ára stelpu sem elskar fótbolta og spilar í hjómsveit. Um konur sem fokka upp systemi og konur sem gera það ekki. Um fjallgöngugarpa og sirkusdýr og ferðalög og ævintýri. En ekki um húsbændur og hjú.

Næst þegar ég fer í meðferð af einhverju tagi þá ætla ég að taka mitt eigið lesefni með mér. Reyndar dett ég oft niður á eitthvað í MAN. Annars verð ég bara að fara að gefa út mitt eigið tímarit. Mikið sakna ég Veru sem ég var áskrifandi að þann tíma sem hún var gefin út. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál