Þetta er gott að gera á morgnana

Hugleiðsla, tónlist og hvatningarorð eru sniðug á morgnanna.
Hugleiðsla, tónlist og hvatningarorð eru sniðug á morgnanna. mbl.is/Thinkstockphotos

Fólk sem gengur vel og nær árangri er oft vel skipulagt og er í góðri rútínu. Women's Health talaði við nokkrar farsælar konur og fékk að vita hvað þær gerðu á morgnana.  

Að búa til lista

Ein kona lýsir því að hún setji sér markmið á morgnana yfir það hverju hún vilji áorka yfir vikuna. Ef hún nær ekki að klára eitthvert verkefni á réttum degi færir hún það fram á næsta dag. Þetta gerir konan á hverjum degi. 

Góð tónlist

Ein kona lýsir því að hún sé hamingjusömust á morgnana þegar hún hlustar á tónlist. Hún sé tilbúin í vinnuna þegar hún er komin í vinnuna eftir að hafa notið þess að hlusta á tónlistina. 

Hvatningarorð

Ein kona segist lesa hvatningarorð á morgnana það hjálpar henni að vera jákvæð og finna tilgang með deginum. 

Hugleiðsla

Ein kona segist alltaf hugleiða á morgnana í að minnsta kosti nokkrar mínútur. Þetta sé eini tíminn sem hún sé ekki að flýta sér og láti ekki aðra hluti trufla sig. 

Vakna án vekjaraklukku

Ein kona segist vinna best á morgnana og því vaknar hún klukkan hálfsjö eða sjö. Hún fer snemma að sofa og vaknar þegar hún er búin að fá nægan svefn, án vekjaraklukku. 

Það getur verið gott að fara snemma að sofa og …
Það getur verið gott að fara snemma að sofa og láta líkamsklukkuna um það að vekja mann en ekki vekjaraklukku. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál