Bað kærustunnar á bólakafi

Parið, nýtrúlofað.
Parið, nýtrúlofað. Skjáskot/HuffingtonPost

Eric Martinez skipulagði hið fullkomna bónorð fyrir kærustu sína sem er alveg hugfangin af hafmeyjum.

Martinez bað kærustu sinnar, Cammy Rynae Cuoco, þegar þau voru í miðri myndatöku í Mexíkó og sagði henni svo að hann ætlaði að biðja hennar aftur, en í þetta skipti neðansjávar.

Bónorðið var vel skipulagt og var Martinez með sérhannaðan og glitrandi hafmeyjusporð tilbúinn fyrir kærustu sína til þess að klæðast þegar hann bað hennar með rauðum sleikjóhring. 

Meðferðis fengu þau með sér ljósmyndarann Polly Sawson og tók hún undursamlegar myndir af neðansjávarbónorði Martinezar. 

Skjáskot/HuffingtonPost
Skjáskot/HuffingtonPost
Skjáskot/HuffingtonPost
Skjáskot/HuffingtonPost
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál