Smartland Mörtu Maríu
| mbl
| 7.2.2012
| 22:05
„Ég elska þennan sjeik“
„Þetta er einn af mínum uppáhaldssjeikum,“ segir Ebba Guðný um gojí-kasjú-drykkinn sem hún kennir okkur að búa til í nýjum þætti af PureEbba á MBL Sjónvarpi. „Ég nota í hann möndlumauk, goji-ber, banana, mangó og fleira. Svo má aðlaga hann eftir smekk,“ segir Ebba. „Það besta er að hann er í raun eins og hollur ís en samt saðsamur og góður eins og máltíð. Hvað er hægt að óska sér betra,“ segir Ebba.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin























