Leigja fyrir 19,8 milljónir á mánuði

Beyoncé og Jay Z eru á leigumarkaðinum.
Beyoncé og Jay Z eru á leigumarkaðinum. AFP/curbed.com

Þau Beyoncé og Jay Z gátu ekki keypt draumahúsið sitt í desember þar sem sænskur auðjöfur yfirbauð þau og þess vegna eru þau hjón komin á leigumarkaðinn í Los Angeles. Jay Z og Beyoncé hafa nú tekið stærðarinnar glæsihús á leigu og mun leigan vera í kringum 19,8 milljónir krónur á mánuði.

Í húsinu er vínkjallari, sundlaug, listagallerí, líkamsræktarsalur, bókasafn, tennisvöllur og bíósalur svo eitthvað sé nefnt. Í húsinu eru svo sjö svefnherbergi og níu baðherbergi.

Ekki er vitað hversu löngum tíma fjölskyldan mun verja í húsinu en samkvæmt TMZ hafa þau hjón skráð dóttur sína, Blue Ivy, í einkaskóla sem er nærri húsinu. Húsið er þó til sölu fyrir um 4,7 milljarða króna.

Fleiri myndir af húsinu má finna á Curbed.com.

Sjáðu húsið sem Beyoncé og Jay Z misstu af

Hérna geta Beyoncé og Jay Z rifið í lóðin.
Hérna geta Beyoncé og Jay Z rifið í lóðin. curbed.com
Eitt af níu baðherbergjum hússins.
Eitt af níu baðherbergjum hússins. curbed.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál