Kínverjar banna erótískt bananaát

Þetta þykir ekki til siðs í Kína.
Þetta þykir ekki til siðs í Kína. Thinkstock / Getty Images

Yfirvöld í Kína hafa skorið upp herör gegn bananaáti í beinni. Ekki þó öllu bananaáti, heldur því sem þykir helst til ögrandi og finna má á netinu.

Menningarráðuneytið telur að iðjan, sem notið hefur vaxandi vinsælda, sé skaðleg siðgæði þjóðarinnar og eigi ekkert erindi við almenning.

Í flestum tilfellum eru það konur sem stilla sér upp fyrir framan vefmyndavélarnar, líkt og fram kemur í frétt Women‘s Health.

Yfirvöld hafa sérlegar áhyggjur að ástandinu, enda algengt að ungmenni bæði taki þátt í útsendingunum, sem og horfi á þær.

Þá hefur einnig verið lagt blátt bann við því að streyma efni á netinu, íklæddur sokkaböndum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál