15 milljarðar í brjóstahaldara

Jasmine Tookes mun klæðast hinum fokdýra brjóstahaldara þetta árið.
Jasmine Tookes mun klæðast hinum fokdýra brjóstahaldara þetta árið. Ljósmynd / skjáskot ELLE

Tískusýning Victoria‘s Secret er á næsta leiti, og verður þá væntanlega mikið um dýrðir. Hápunktur tískusýningarinnar er jafnan þegar ein vel valin fyrirsæta fær að spranga niður tískupallinn íklædd fokdýrum nærhöldum.

Að þessu sinni er það fyrirsætan Jasmine Tookes sem fær að bera „fantasy“ brjóstahaldarann svokallaða, en að þessu sinni er hann skreyttur 900 eðalsteinum og kostar ekki nema litlar þrjár milljónir Bandaríkjadala eða tæplega 338 milljónir íslenskra króna.

Raunar hefur Victoria‘s Secret eytt gríðarlegum fjárhæðum í þessa útvöldu brjóstahaldara í gegnum tíðina, en ef taldir eru „fantasy“ brjóstahaldarar síðustu 20 ára má sjá að heildarverðmæti þeirra er í kringum tæpa 15 milljarða íslenskra króna.

Frétt ELLE

Lily Aldridge klæddist fokdýra brjóstahaldaranum í fyrra, en hann var …
Lily Aldridge klæddist fokdýra brjóstahaldaranum í fyrra, en hann var metinn á 225 milljónir íslenskra króna. Ljósmynd / skjáskot ELLE
Árið 2005 hlaut Gisele Bundchen heiðurinn, en það árið kostaði …
Árið 2005 hlaut Gisele Bundchen heiðurinn, en það árið kostaði brjóstahaldarinn 1,4 milljarða íslenskra króna. Ljósmynd / skjáskot ELLE
Árið 2004 hreppti Tyra Banks hnossið, en brjóstahaldarinn sem hún …
Árið 2004 hreppti Tyra Banks hnossið, en brjóstahaldarinn sem hún klæddist kostaði 1,1 milljarð íslenskra króna. Ljósmynd / skjáskot ELLE
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál