„Kæra E. Jean, ég er að halda við lækninn minn. Hann sagði mér upphaflega að hann væri einhleypur og vildi ekki binda sig. Seinna meir komst ég að því að hann væri giftur, en ég hélt engu að síður áfram að hitta hann. Ár hefur liðið og ég komst að því að hann stofnaði til annars sambands. Í síðasta mánuði komst ég síðan að því að hann er í tygjum við fjórðu konuna,“ segir í bréfi ónafngreindrar konu sem leitaði á náði E. Jean, sérlegs ráðgjafa tímaritsins Elle.
„Hann kallar mig ástina sína og segist aðeins elska mig. Hvernig getur hann verið svona grunnhygginn? Finnur hann ekki samkennd með öðru fólki? Kveðja, ein sár.“
Ráðgjafinn var ekki par hrifinn af fyrirspurninni, líkt og sjá má.
„Kæra ein sár. Hefur þú enga samkennd með eiginkonu hans?
P.s. Á hvaða spítala vinnur þessi læknir? Ég vil ekki lenda í því að beinbrjóta mig nálægt spítalanum svo ég eigi á hættu að enda á skurðarborðinu hjá honum.“