Manstu eftir Uppunum sem þóttu svo töff á níunda áratugnum? Þeir klæddust tvíhnepptum jakkafötum og voru alltaf svo glerfínir að eftir var tekið. Nú er Uppa-tískan komin á kreik á ný og má sjá tvíhneppta jakkafatajakka í verslunum borgarinnar. Það eru þó ekki bara íslenskir tískusérfræðingar sem fíla tvíhneppt því stjörnur á borð við Scarlett Johansson sást í einum slíkum á dögunum. Hann var frá Michael Kors og var með teinum.