Dóttir Jóns Gnarr lenti í 2. sæti

Margrét Edda Gnarr landaði silfrinu.
Margrét Edda Gnarr landaði silfrinu. mbl.is/Hjalti Vignisson
  • Margrét Edda Gnarr byrjaði að lyfta í sumar og vann silfurverðlaun í tveimur flokkum á fitness WBFF Evrópumótinu 2011. Silfurverðlaunin fékk hún bæði í bikiní diva flokknum og fitness diva flokknum.

Margrét Edda hefur stundað íþróttir frá 4 ára aldri. Fyrst var hún í ballett og fimleikum og svo æfði hún listdans á skautum.

„Ég æfði listdansinn í 6 ár og fór svo í taekwondo en í því hef ég verið síðasta áratuginn. Ég byrjaði að lyfta þegar ég var 16 ára en byrjaði fyrir alvöru núna í sumar. Í dag lyfti á hverjum degi.“

Hvernig þjálfaðir þú þig fyrir mótið? „Ég byrjaði á því að taka mjög krefjandi og erfiðar æfingar og borðaði nóg af kolvetnum. Ég fékk mér Crea+ og Glutamin frá SCI-MX á hverjum degi. Ég fór svo í fjarþjálfun hjá Katrínu Evu í september og byrjaði á smá kötti 6 vikum fyrir mót. Auk þess fór ég á
pósunámskeið hjá Konna, Sif og Magga Sam og æfði pósurnar eins mikið og ég gat uppi í Sporthúsi.“

Hefur þú lengi haft áhuga á fitness? „Ég hef haft lúmskan áhuga en áhuginn varð mikill núna í sumar.“


Hvað borðaðir þú dagana fyrir mót? „Viku fyrir mót hélt ég mér svolítið frá kolvetnum. Borðaði mikið af kjúklingi. Nokkrum dögum fyrir mót tók ég smá kolvetnissvelt og var á vatnslosandi.“


Kom sigurinn þér á óvart? „Já og nei. Ég vissi ekkert hvað myndi gerast en er ótrúlega ánægð.“


Hvað ertu að gera fyrir utan fitnessið? „Ég er bara að æfa á fullu og leita mér að vinnu.“


Margrét Edda gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Merzedes Club. Ertu hætt að syngja? „Nei ég syng ennþá í sturtunni. Gæti vel verið að ég fari að gera meira í tónlistinni bráðum.“

Margrét Edda Gnarr fyrir miðju ásamt hinum keppendunum.
Margrét Edda Gnarr fyrir miðju ásamt hinum keppendunum. mbl.is/Hjalti Vignisson
mbl.is/Hjalti Vignisson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál