Nigella léttist og léttist

Nigella Lawson.
Nigella Lawson. mbl.is

Stjörnukokkurinn frægi Nigella Lawson sem ávallt hefur verið þekkt fyrir kvenlegar línur hefur tapað ófáum kílóum upp á síðkastið.

Nigella hefur vakið gríðarlega athygli meðal áhorfenda fyrir lipurð í eldhúsinu og hressileika.  Hún hefur grætt milljónir á matreiðslubókunum sem hún hefur gefið út sem og sjónvarpsþáttunum.

Nigella, sem hefur alltaf verið með mjúkar línur, sást með manni sínum, Charles Saatchi, á veitingastað í London um daginn þar sem hún vakti mikla athygli fyrir flottan líkama sinn. Hún var klædd í skærgula úlpu en hún hefur ekki gert það að vana sínum að klæðast litríkum fötum heldur velur hún oftast að vera í svörtu frá toppi til táar.

Sjónvarpsstjarnan hefur ekki ljóstrað upp leyndarmálinu fyrir þyngdartapi sínu en hún hefur talað um það lengi að missa nokkur kíló og koma sér í gott form.

Fram kemur á Daily Mail að hún hafi sagt fyrr á árinu að það komi tímar þar sem hún vilji missa nokkur kíló. Hún vilji ekki vera þekkt fyrir að vera þybbna konan í sjónvarpinu. En þrátt fyrir það segir hún að ef hún léttist myndu margir af aðdáendum hennar verða ósáttir. Hún lítur samt stórglæsilega út núna, líka eftir kílóamissinn.

Nigella hefur ávalt átt í baráttu við aukakílóin
Nigella hefur ávalt átt í baráttu við aukakílóin Francesca Yorke
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál