Þynnkuráð Gwyneth Paltrow

Gwyneth Paltrow.
Gwyneth Paltrow.

Gwyneth Paltrow ætlar að vera við öllu búin og sjá til þess að það hafi ekki eftirmál og bitni á heilsunni á nýársdag þó að hún skáli í góðu víni um áramótin. Á vefsíðu sinni GOOP gefur leikkonan góð ráð gegn timburmönnum sem hún kveðst vona að komi að góðu gangi nú þegar áramótin séu að ganga í garð.

Paltrow segist nota einfalda aðferð til að skola út vínandanum úr blóðinu og þannig hressa sig við daginn eftir víndrykkju. Leikkonan mælir með nýjum orkudrykk Mercy sem sé þróaður sérstaklega í því skyni að koma í veg fyrir timburmenn. Drykkurinn er nýkominn á markað í Bandaríkjunum og Paltrow segir hann virka svo vel að hún hafi ákveðið að fjárfesta í fyrirtækinu sem stendur á bak við vöruna.

Drykkurinn inniheldur að sögn leikkonunnar allt sem líkaminn þarfnast eftir víndrykkju; amínósýrur, vítamín og steinefni, auk heilsujurta. En hún hefur líka önnur ráð gegn timburmönnum, heitt og kalt bað á víxl. Galdurinn sé að fylla baðkarið af vel heitu vatni og blanda út í það Epsom-salti og matarsóda. Hún ráðleggur fólki að liggja í 20 mínútur í heitu baðinu og stinga sér svo eldsnöggt í ískalda sturtu í eina mínútu. Leggjast síðan aftur ofan í baðkarið í 20 mínútur og enda á ískaldri sturtu.

Gwyneth Paltrow.
Gwyneth Paltrow. MIKE SEGAR
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál