Orkumeiri og andleg líðan betri
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Hreyfingin er virkilega að hjálpa fólki að taka á stoðkerfisvandamálum, hver sem þau eru. Við höfum verið að þróa þessa lausn að undanförnu og árangurinn er góður,“ segir Hildur R. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Heilsuborgar.
Námskeið Heilsuborgar, sem er við Faxafen í Reykjavík, fyrir svonefndan stoðkerfishóp hefst 16. janúar næstkomandi. María Jónsdóttir sjúkraþjálfari er leiðbeinandi og er miðað við að taka inn fimmtán til tuttugu þátttakendur á hvort námskeið en þau eru tvö.
Námskeiðið fellur að þeim markmiðum sem Heilsuborg starfar eftir almennt; það er að aðstoða fólk við að bæta og viðhalda góðri heilsu.
Margir með streitueinkenni
Með stoðkerfi er átt við beinagrindina og vöðvana sem tengjast henni, en einnig sinar og liðbönd. Einkenni frá stoðkerfi geta því verið allt frá vægri tognun og yfir í mun stærri vandamál, svo sem útbreidda slitgigt, brjósklos eða liðskiptaaðgerðir.
„Ýmsar ástæður geta legið að baki stoðkerfisvandamálum,“ segir Hildur. Nefna má ranga eða einhæfa líkamsbeitingu, álag við vinnu eða meiðsli. Í stoðkerfishóp Heilsuborgar hefur og verið fólk sem lent hefur í bílslysi og fengið höfuðhnykk og er þar af leiðandi með einkenni frá háls- og herðasvæði.
„Streitan í þjóðfélaginu í dag er mikil og eru margir komnir með steitueinkenni vegna álags svo sem vöðvabólgur og verki í baki. Þegar streitan er annars vegar þá er mikilvægt að minnka streituna í líkamanum og greina ástæður streitunnar,“ segir Hildur.
Njóta lífsins betur
Þeir sem hafa sótt námskeiðið eru flestir að sækjast eftir vandaðri þjálfun í góðum félagsskap. Einnig hafa ráðgjafar frá Virk starfsendurhæfingarsjóði valið þessa lausn fyrir sína skjólstæðinga. Í upphafi átta vikna námskeiðs fær hver einstaklingur mat og ráðgjöf frá sjúkraþjálfara. Þar er farið yfir helstu einkenni sem viðkomandi glímir við frá stoðkerfi og í kjölfarið hvaða æfingar skal leggja áherslu á og hvaða æfingar skal forðast. Einstaklingurinn lærir að finna sín mörk og setja sér raunhæf markmið.
„Markmiðin geta verið margskonar og er mikilvægt að taka tillit til hvar viðkomandi er staddur og hvað það er sem orsakar stoðkerfiseinkennin. Fyrir utan að efla hreyfigetu, þol og styrk geta markmið verið að minnka verki, bæta svefn, minnka streitu, og almennt njóta lífsins betur,“ segir Hildur.
Andlega hliðin er mikilvæg
Í tímum stoðkerfishóps er farið vel yfir rétta líkamsbeitingu við æfingar og lögð áhersla á að allir fái æfingar sem samræma getu, enda einkenni mjög misjöfn hjá hverjum og einum. Þá eru styrktaræfingar gerðar í bland við liðkandi æfingar og jafnvægisþjálfun. Í lok hvers tíma er teygt vel á. Reynt er að hafa æfingarnar fjölbreyttar.
Innifaldir í námskeiðinu eru fyrirlestrar þar sem fjallað er um verki og andlega líðan. Hvernig hægt er að takast á við verkina og lifa góðu lífi þrátt fyrir verkina. Ásamt því að farið er yfir hvað þarf að hafa í huga til að halda góðri heilsu og fyrirbyggja heilsubrest
„Margir nefna að verkir hafi minnkað umtalsvert, svefn hafi batnað, þeir séu orkumeiri og að andleg líðan sé betri. Enda er andlega hliðin ekki síður mikilvæg þegar fólk hefur lengi glímt við verki frá stoðkerfinu,“ segir Hildur.
Heildstætt heilsumat
Í Heilsuborg gefst kostur á að fá aðstoð við að vinna með heilsu sína á heildrænan hátt og koma jafnvægi á alla þá þætti sem hafa áhrif á heilsu. Samhliða því að vera í stoðkerfishóp þar sem verið að vinna með hreyfingu, líkamsstöðu og líkamsbeitingu má einnig finna aðstoð við að innleiða betri venjur, bæta lífsstíl og minnka streitu. Boðið er upp á ráðgjöf og fræðslu fólks, streitunámskeið, hugræna atferlismeðferð, nudd, hugleiðslu og ýmislegt fleira.
„Margir vita að þeir þurfa að gera breytingar á sínum lífsstíl en vita ekki hvar þeir eiga að byrja eða hvort stoðkerfishópur hentar þeim. Þá mælum við eindregið með að viðkomandi panti sér tíma hjá okkur í heilsumati en þá fer hjúkrunarfræðingur yfir stöðuna á heilsu viðkomandi, gerir ýmsar mælingar og veitir ráðgjöf um næstu skref. Fyrsta skrefið hjá mörgum hefur einmitt verið að láta meta heilsu sína heildstætt og í framhaldinu hefur boltinn farið að rúlla,“ segir Hildur Kristjánsdóttir.
sbs@mbl.is
Styrktist við stoðkerfisæfingar
Áhrif á allan líkamann
„Ég valdi að fara í stoðkerfishópinn af því að ég fann alls staðar til og var eiginlega hætt að geta farið út að ganga. Nú eru liðnir tveir mánuðir og mér líður frábærlega og ég þekki mig bara ekki frá því sem var. Ég get farið út að ganga og maðurinn minn vakti athygli mína á því um daginn að við vorum búin að ganga í eina þrjá tíma og ég ekkert farin að kvarta í mjöðmunum,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir sem er einn af skjólstæðingum Heilsuborgar.
Allir verkir hafa minnkað, segir Sólveig sem áður kveðst alltaf hafa verið þreytt og oft hafa þurft að leggja sig.
„Mér finnst satt að segja að allir sem finna til verkja ættu að koma hingað í Heilsuborg. Hreyfingin hefur líka áhrif á alla starfssemi líkamans og svo er þetta gott fyrir sálina. Mér líður miklu betur og svo er auðvitað bónus að ég hef lést um ein þrjú kíló. Ég er ákveðin í að halda áfram og vil alls ekki lenda í því aftur að missa niður hreyfinguna,“ segir Sólveig sem fyrr á árum var dugleg við að hreyfa sig en hætti fyrir allmörgum árum. Hún kveðst fljótt hafa fundið afleiðingar þess.
„Aðalmálið er að stoppa ekki, frekar æfa sjaldnar en ekki hætta. Félagsskapurinn í stoðkerfiskópnum er góður og við náum vel saman,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir.
























